Áhrif líkamsbyggingar íþróttastelpna og -stráka á hreyfimynstur við framkvæmd gabbhreyfinga
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Slit á fremra krossbandi (FK) er alvarlegur áverki á hné og getur haft neikvæð áhrif á íþróttaiðkun fólks. Í rannsóknum þar sem kannaðir eru kynbundnir áhættuþættir krossbandsslita er oftast einblínt á einstaklinga eftir kynþroska. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort kynbundinn munur á líkamsbyggingu væri til staðar hjá 9 - 12 ára börnum og hvort ákveðnar breytur sem endurspegla líkamsbyggingu hefðu tengsl við hreyfimynstur um mjöðm og hné við framkvæmd gabbhreyfinga. Einnig var kannað hvort kynbundinn munur væri á hreyfimynstri hægri og vinstri hliðar, fyrir og eftir þreytuíhlutun. \nAlls tóku 129 (stúlkur og drengir) þátt, frá handbolta- og fótboltaliðum á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur hituðu upp á hjóli í 5 mínútur, framkvæmdu síðan 10 gabbhreyfingar (5 endurtekningar fyrir hvorn fót) þar sem stigið var á AMTI kraftplötu á meðan átta myndavélakerfi frá Qualisys voru notuð til að taka upp hreyfingarnar í þrívídd. Í kjölfarið fóru þátttakendur í 5 mínútna þreytuíhlutun á skautabretti og endurtóku svo 10 gabbhreyfingar. Staða neðri útlima var skoðuð út frá tímapunkti hámarks fráfærslukraftvægis í hné fyrstu 50 millisekúndur stöðufasans (HFK<50msek). Til tölfræðiúrvinnslu var lýsandi tölfræði notuð ásamt t-prófi og pöruðu t- prófi. Marktektarmörk voru sett við 0,05. \n\tHelstu niðurstöður sýndu kynbundinn mun á nokkrum breytum tengdum líkamsbyggingu barnanna. Niðurstöður leiddu líka í ljós að munur milli hliða á hreyfingu mjaðma og búks var ekki eins hjá strákum og stelpum og að áhrif þreytu á fráfærsluhorn í hné voru ólík á milli kynja. Ekki fannst marktæk fylgni á milli líkamsbyggingar og hámarks fráfærslukraftvægis í hné við HFK<50msek en marktæk fylgni var milli líkamsbyggingar neðri útlima og annarra lífaflfræðilegra breyta. \nLíkamsbygging virðist hafa áhrif á hreyfimynstur við framkvæmd gabbhreyfinga. Þótt ekki sé hægt að hafa áhrif á líkamsbyggingu sem áhættuþátt er nauðsynlegt að vera meðvitaður það hvernig líkamsbygging getur haft áhrif á aðra áhættuþætti þegar hugað er að forvörnum.
Source: Skemman
Authors: Sandra Sigurðardóttir 1986, Þórunn Gísladóttir Roth 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045258065
