Áhrif fjarvinnu á starfsánægju og líðan starfsfólks á Covid tímum
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Skrifstofustarfsfólk flugfélagsins Icelandair fór í fjarvinnu í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins árið 2020. Markmið rannsóknarinnar var að skoða fjarvinnu út frá tveimur rannsóknarspurningum, hvaða áhrif hefur fjarvinna á starfsánægju hjá starfsfólki og hvaða áhrif hefur fjarvinna á líðan starfsfólks. Blönduð aðferð var notuð í rannsókninni þar sem megindleg spurningakönnun var lögð fyrir skrifstofustarfsfólk fyrirtækisins og eigindleg hálfopin viðtöl (e. semi-structured interviews) tekin við sex stjórnendur og millistjórnendur innan fyrirtækisins sem voru með mannaforráð. Þar voru kannaðir þeir þættir sem hafa haft áhrif á starfsánægju og líðan í fyrri rannsóknum. Áhrif fjarvinnu á starfsánægju var mismunandi á milli hópa, hún jókst hjá hluta starfsfólks og minnkaði hjá öðrum. Þeir sem voru með minnsta jafnvægið á milli vinnu og einkalífs upplifðu minni starfsánægju. Flestir stjórnendur töldu að fjarvinna hefði neikvæð áhrif á líðan starfsfólks. Fyrirtækið gekk í gegnum mikla óvissutíma samhliða því að heimsfaraldur Covid-19 hafði mikil áhrif á samfélög um heim allan. Mikið var um hópuppsagnir í fyrirtækinu samhliða því að fólk var í fjarvinnu. Það getur einnig haft áhrif á niðurstöður rannsóknarinnar.
Source: Skemman
Institution: Bifröst University
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: remote work, COVID-19 pandemic, job satisfaction, leadership, airline employees, Icelandair, work-life balance, employee well-being, organizational culture, employee feedback, employee participation, employee empowerment, employee autonomy, employee responsibility, employee accountability, employee commitment, employee loyalty
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045272842
