Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verða kynntar niðurstöður eigindlegrar rannsóknar sem ber \ntitilinn Áhugamál stúlkna með Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir á \neinhverfurófi. Tilgangur rannsóknar var að fá innsýn í áhugamál stúlknanna, \nhvaða þýðingu þau hefðu fyrir þær og hvaða áhrif þau hefðu á nánasta umhverfi \nþeirra, nám, félagsleg samskipti, sjálfsmynd og líðan. Rannsóknarsniðið er \ntilviksathugun (case study) og byggir á nálgun grundaðrar kenningar. \nUpplýsingar um áhugamál stúlknanna voru fengnar með viðtölum við sex \nstúlkur á aldrinum 11-18 ára og mæður þeirra. Niðurstöður leiddu í ljós að \nstúkurnar áttu margt sameiginlegt og áhugamál þeirra voru lík. Fram komu \nskýrar vísbendingar um uppruna og gildi áhugamálanna fyrir stúlkurnar og hvað \nþau skipta þær miklu máli í daglegu lífi. Stúlkurnar virtust nýta áhugamálin til \nað bæta sér upp vanhæfni í félagslegum samskiptum og vinaleysi. Áhugamálin \nsem oftast voru stunduð í einveru, gerðu þeim kleift að dvelja í „annarskonar \nheimi“ þar sem kröfur um samskipti og gagnkvæmni voru minni. Þau \nendurspegluðu oft viðstöðulausa þörf stúlknanna á að teikna, lesa og skrifa. \nNiðurstöðurnar hafa ekki alhæfingargildi en veita innsýn í áhugamál og gildi \náhugamála stúlkna með Aspergersheilkenni með hjálp þessara sex stúlkna og \nmeð því að kanna rannsóknir og fræðilegar nálganir. Lögð er áhersla á afmörkun \nog dýpt, og vonast til að niðurstöður geti verið grunnur víðtækari rannsókna. \nEnn fremur veita niðurstöður innsýn í hvaða þættir það eru sem hafa áhrif á \nsjálfsmynd stúlknanna. Málefnum stúlkna á einhverfurófi hefur ekki verið mikill \ngaumur gefinn til þessa og ekki er vitað til þess að áhugamál þeirra hafi verið \nsérstaklega rannsökuð. Mikilvægi rannsóknarinnar felst einnig í því að varpa \nljósi á margbreytileika og litróf mannlegrar hegðunar í samfélaginu út frá \nsjónarhóli þátttakenda. Til þess að geta mætt þörfum barna og ungmenna með \nraskanir á einhverfurófi af skilningi og virðingu er nauðsynlegt að kanna viðhorf \nþeirra sjálfra og þeirra nánustu.
Source: Skemman
Author: Laufey Ingibjörg Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Cognitive Neuroscience
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045326220
