Work

Adverse childhood experience and psychological distress among young adults in Iceland

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir hafa gefið til kynna að erfið lífsreynsla í æsku geti haft neikvæðar \nafleiðingar á andlega og líkamlega heilsu á fullorðinsárum. Markmið þessarar rannsóknar var að meta tengsl á milli erfiðrar lífsreynslu í æsku og sálrænnar vanlíðunar meðal ungmenna á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var einnig að skoða hvort að kynjamunur væri á tegundum og fjölda erfiðra lífsreynsla og sálrænni vanlíðan, sem mæld er með CORE. Gögn fyrir rannsóknina voru fengin frá Berginu Headspace, sem er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk að 25 áraaldri. Úrtakið samanstóð af 76 einstaklingum á aldrinum 18-25 ára, af þeim voru 33 karlar og 43 konur. Niðurstöður sýndu að konur voru líklegri en karlar til að hafa átt foreldri eða forráðamann sem sat í fangelsi, eða hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Niðurstöður sýndu einnig að konur skoruðu að meðaltali hærra í CORE undirflokknum “vellíðan“ samanborði við karla. Fylgni fannst á milli erfiðrar lífsreynslu í æsku og CORE heildarstiga og CORE r sem mælir hættu á að skaða sjálfan sig og aðra. Rannsókn þessi styður niðurstöður fyrri rannsókna að tengsl séu á milli erfiðra lífsreynsla í æsku og sálrænnar vanlíðan.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045364464
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10