Áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmat stúlkna á aldrinum 9-18 ára
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Notkun samfélagsmiðla hefur vaxið ört síðustu ár og hefur umræðan í samfélaginu um aukna notkun slíkra miðla vakið athygli margra. Uppi eru misjafnar skoðanir um áhrif af notkun samfélagsmiðla og hvort slík áhrif séu jákvæð eða neikvæð. Umræða um neikvæð áhrif samfélagsmiðlanotkunar hefur verið áberandi þegar sjálfsmat unglinga er annars vegar og mikilvægt að rannsaka nánar samspil þessara þátta nánar svo finna megi leiðir til að fyrirbyggja hugsanleg neikvæð áhrif til framtíðar. Í þessari rannsókn voru áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmat stúlkna á aldrinum 9-18 ára skoðuð. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við gögn úr úrtaksrannsókn sem framkvæmd var í Noregi árið 2018 og ber heitið „Evrópsk ungmenni á netinu“. Við úrvinnslu gagna var notast við svör frá einstaklingum sem svöruðu fullyrðingarspurningu um sjálfsmat sem orðuð var með þesum hætti: „ég hef á tilfinningunni að annað fólk telji sig vera betra en ég er“. Aðrar spurningar sem komu inná sjálfsmat og netnotkun voru í framhaldinu bornar saman við fylgibreytuna til frekari úrvinnslu. Rannsóknin leiddi í ljós að stúlkur virðast móttækilegri en drengir fyrir áhrifum sem samfélagsmiðlar kunna að hafa á sjálfsmat þeirra. Áhrif samfélagsmiðla virtust jafnframt aukast með hverju aldursári. Miðað við niðurstöður rannsóknarinnar, má sjá að greinileg þörf er á frekari rannsóknum og fræðslu um viðfangsefnið. \n \nLykilhugtök: sjálfsmat, samfélagsmiðlar, unglingar
Source: Skemman
Authors: Hekla Jónasdóttir, Hrefna Dís Halldórsdóttir, Kristín Helga Valdimarsdóttir, María Rún Eyþórsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045452936
