ADHD meðal fullorðinna: Samanburður á algengi ADHD út frá einkennalista um núverandi einkenni árin 2005 og 2023, ásamt athugun á tíðni greininga og lyfjanotkunar
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Algengi ADHD (e. Attention-Deficit/Hyperactivity Disorder) hefur mikið verið rannsakað meðal barna og unglinga en mun færri rannsóknir hafa kannað algengi meðal fullorðinna. Fyrri hluti þessa verkefnis inniheldur fræðilega umfjöllun á ADHD. Fjallað verður almennt um einkenni ADHD og greiningarskilmerki röskunarinnar í gegnum árin og nýlegar breytingar þar á. Farið verður stuttlega yfir greiningarferlið og meðferð, sem og mögulegar neikvæðar afleiðingar þess að glíma við ADHD. Að lokum verður farið yfir stöðu þekkingar á algengi ADHD, bæði meðal barna og unglinga og fullorðinna. Seinni hluti þessa verkefnis inniheldur handrit að grein um rannsókn á algengi núverandi einkenna um ADHD meðal fullorðinna. Helsta markmið rannsóknarinnar var að skoða algengi ADHD meðal fullorðinna út frá einkennalista um núverandi einkenni ADHD og voru niðurstöður fyrir árin 2005 og 2023 borin saman. Þar að auki var kannað hversu margir hefðu fengið ADHD greiningu hjá sálfræðingi eða geðlækni og tíðni lyfjanotkunar var skoðuð í samanburði við útkomu einkennalistans. Að lokum voru skoðuð tengsl ADHD við menntunarstig, upplifaða streitu og depurðar- og kvíðaeinkenni. Niðurstöður rannsóknarinnar veita frekari innsýn í núverandi stöðu ADHD einkenna meðal fullorðinna hérlendis en frekari rannsókna er þörf þar sem einnig er tekið mið af aldri við upphaf einkenna, hömlun af völdum einkenna og útilokun annarra geðraskana sem skýringu á einkennum.
Source: Skemman
Author: Þórhildur Guðjónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045455192
