Afdrif fyrirtækjamenningar við samruna og yfirtöku
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Fyrirtækjamenning hefur verið skilgreind á margvíslegan hátt í gegnum árin. Hugtakið hefur verið skilgreint sem andardráttur, líffspeki eða trú skipulagsheildar, óséð og óáþreifanlegt afl sem bindur alla skipulagsheildina saman, grunnur af öllum árangri og er ekki enn eitt púslið í púsluspilinu heldur púsluspilið sjálft. Hugtökin samruni og yfirtaka eru oft samtvinnuð og notuð á víxl um sameiningu skipulagsheilda. Í stuttu máli á hugtakið samruni við þegar tvær skipulagsheildir sameinast í eina en hugtakið yfirtaka þegar ein skipulagsheild yfirtekur aðra og hefur yfirhöndina. \nÞrátt fyrir mikið lof um samruna og yfirtöku er meðalprósenta brests við sameiningar talin vera um 60 prósent og er menningarlegt ósamræmi talin vera helsta ástæða brests við samruna og yfirtöku. Með rannsókninni var leitast eftir að kanna afdrif fyrirtækjamenningar þegar kemur að samruna og yfirtöku sem og að kanna áhrif sameiningarinnar á fyrirtækjamenninguna. Mælitækið sem var notast við var Denison spurningarlistinn sem er þekkt mælitæki til þess að mæla styrkleika og veikleika fyrirtækjamenningar og voru 77 aðilar sem svöruðu listanum. Einnig voru tekin viðtöl við sjö svarendur í sjö fyrirtækjum eða opinberum stofnunum til þess að geta rýnt enn betur í fræðin og fá meiri dýpt í rannsóknina. Þessi fyrirtæki eða opinberu stofnanir höfðu öll gengið í gegnum sameiningar á síðustu 12 árum. Markmið ritgerðarinnar var að fá skýrari mynd af íslenskri fyrirtækjamenningu við samruna og yfirtöku, þá var skoðað einkar vel hvaða áhrif sameiningin hafði á fyrirtækjamenningu. \nNiðurstöður rannsóknarinnar voru að afdrif fyrirtækjamenningar er að jafnaði góð og fyrirtækjamenningin hjá Fyrirtækjunum er sterk. Samruni og yfirtaka höfðu þó nokkur áhrif á fyrirtækjamenningu en þó einna helst jákvæð áhrif sem efldi og styrkti skipulagsheildirnar til muna.
Source: Skemman
Author: Elísabet Gunnarsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: organizational commitment, organizational identification, organizational change, organizational flexibility, organizational values, organizational goals, organizational structure, organizational behavior, organizational communication, organizational leadership, organizational management, organizational development, organizational decline, organizational renewal, organizational innovation, organizational efficiency, organizational effectiveness, organizational performance, change management, organizational resistance to change
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045486599
