„Að njóta en ekki að þjóta“: Upplifun náttúruhlaupara af náttúrunni og samspil þess við líðan
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Tengsl mannsins við náttúruna hefur tekið miklum breytingum í gegnum tíðina, en með iðnbyltingunni fluttist fólk úr dreifbýlum yfir í þéttbýlin sem hafði í för með sér bein áhrif á tengsl manns við náttúru. Rómantíska hreyfingin kom síðan á átjándu öld sem andstaða við þessum samfélagsbreytingum, þá þótti eftirsóknarvert að sækja í náttúruna á ný. Rómantísku hugmyndirnar voru byggðar á eigin upplifun rómantísku skáldanna og fræðimannanna sem lögðu leið sína út í náttúruna. Eftir að þeirra hugmyndir náðu fótfestu lögðu fleiri leið sína í náttúruna. Í þessari rannsókn er viðfangsefnið upplifun náttúruhlaupara af náttúrunni og samspil þess við líðan þeirra. Náttúruhlaup hafa fengið meiri viðtökur á síðustu árum, og í dag ferðast fólk víða um heiminn til að taka þátt í hinum ýmsu utanvegahlaupum. Úrtak var fengið úr hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og var leitast við að kanna upplifun þeirra af náttúrunni og breytingar á líðan. Einnig að athuga hvort þau upplifi meiri vellíðan þegar hreyfingin er færð út í náttúruna. Til að kryfja upplifun þeirra og skilja hana var notast við eigindlegt rannsóknarsnið í formi viðtala og þátttökuathugana. Tekin voru sjö einstaklingsviðtöl við iðkendur og þjálfara. Frá niðurstöðum rannsóknarinnar fundust vísbendingar um að náttúra Íslands hefur áhrif á líðan einstaklinga, en þó er hún ekki eini áhrifaþátturinn. Með náttúrunni hafði félagsskapurinn, áhrif rómantíkunnar og jákvætt hugarfar áhrif á upplifun og líðan viðmælenda.
Source: Skemman
Author: Sóley Rut Sigurðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Urban Green Space and Health
Subfield: Urban Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045495578
