Barnahjónabönd: Orsakir, afleiðingar og uppræting
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Hin ýmsu hjálparsamtök hafa verið ötul í baráttunni gegn barnahjónaböndum síðustu ár enda geta þau haft skaðleg áhrif, sérstaklega á stúlkubörn. Áhrifin eru bæði af félagslegum, andlegum, efnahagslegum og heilsufarslegum toga. Hvernig stendur á því að það sé enn við lýði víðsvegar um heiminn að börn séu gift löngu áður en þau eru andlega og líkamlega tilbúin til þess? Hvaða afleiðingar hefur þessi hefð og hvað er hægt að gera? Þetta eru spurningar sem leitast er við að svara í ritgerðinni. \nMikilvægt er að skilja þær margþættu ástæður sem liggja að baki barnahjónaböndum sem geta verið pólitískar, menningarlegar og efnahagslegar. Etnógrafískar rannsóknaraðferðir mannfræðinnar geta komið að góðu gagni við það. Hjálparsamtök hafa hinsvegar fengið gagnrýni á sig fyrir að einfalda vandamálið sem og að horfa á barnahjónabönd út frá vestrænu sjónarhorni. Mikilvægt er að átta sig á því hversu ólíkar hjúskaparhefðir eru í mismunandi samfélögum og á ólíkum tímabilum og að hugmyndir um barnæskuna geti sömuleiðis verið fjölbreyttar. \nFyrsta skrefið til þess að uppræta barnahjónabönd er að setja reglugerðir gegn þeim en einnig skiptir máli að efla fræðslu almennings sem og leiðtoga samfélaga og löggæsluaðila. Eins er mikilvægt að bæta skráningu fæðinga og giftinga í þróunarlöndum þar sem barnahjónabönd eru algengust. Barnahjónabönd verða þó líklegast aldrei upprætt að fullnustu fyrr en ráðist hefur verið á rót vandans sem er fátækt og misrétti.
Source: Skemman
Author: Kristrún Friðsemd Sveinsdóttir 1990
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Marriage and Family Dynamics
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045558791
