Að vera nemandi með íslensku sem annað tungumál í framhaldsskóla á Íslandi
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessarar rannsóknarritgerðar er reynsla nemenda með íslensku sem annað tungumál af því að hefja og stunda nám í framhaldsskóla á Íslandi. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu nemendanna, námsgengi þeirra og líðan í framhaldsskóla. Fá vitneskju um hvað vel er gert og hvaða umbætur eru brýnastar til að gera innflytjendum betur kleift að ljúka námi í framhaldsskóla. Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla nemenda með íslensku sem annað tungumál af því að hefja og stunda nám í framhaldsskóla á Íslandi? \nGerð var eigindleg viðtalsrannsókn og viðtölin fóru fram á haustdögum 2014. Þátttakendur voru nemendur með íslensku sem annað tungumál, orðnir 18 ára og hafa því nokkra reynslu af skólagöngu sinni. Sendar voru fyrirspurnir til skólameistara sex framhaldsskóla en einungis í þremur þeirra var að finna nemendur sem féllu undir viðmið rannsóknarinnar um aldur viðmælenda. Viðmælendur voru tíu talsins og eru frá sex þjóðlöndum. Skólameistarar og námsráðgjafar viðkomandi skóla komu á fundum með rannsakanda og viðmælendum. Framhaldsskólarnir eru misfjölmennir og aðeins einn skólanna hefur fleiri en eitt þúsund nemendur og innflytjendur eru ekki margir í skólunum yfirleitt. Væntingar stóðu til þess að fá innsýn í móttöku nemenda við upphaf skólagöngu, aðlögun þeirra ásamt þátttöku í félagslífi skólanna, velgengi og námsframvindu. Mikilvægt er að fá upplýsingar frá nemendum sjálfum sem gætu nýst framhaldsskólanum í viðleitni hans til að hlúa vel að nemendunum og stuðla að árangursríku og farsælu námi þeirra. Vonast er til að hægt verði að taka mið af niðurstöðum rannsóknarinnar við umbætur til handa nemendum með íslensku sem annað tungumál í framhaldsskóla. \nNiðurstöður rannsóknarinnar sýna að nemendur kalla eftir meiri íslenskukennslu og stuðningi bæði í skólanum og við heimanám. Þátttakendum bar saman um að kennarar eru boðnir og búnir til að hjálpa þeim en hóparnir eru svo stórir í skólunum að ekki er möguleiki að aðstoða alla nógu vel.
Source: Skemman
Author: Anna Lilja Harðardóttir 1955
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Linguistics and Language
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045696393
