Work

Breytileiki MHC-I gena og baktería í blóði hafarna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Sýnisameindir (e. Major histocompatibility complex) eða MHC gen spila lykilþátt í hlutverki ónæmiskerfisins með því að bera kennsl á sýkla. Mikil fjölbreytileiki innan MHC gena er talinn vera grundvallar eiginleiki sem er viðhaldið með náttúrulegu vali. Þessi gen hafa margsinnis verið rannsökuð innan villtra stofna þar sem MHC breytileiki hefur oft verið tengdur við hæfnistengda eiginleika. Stofn hafarna á Íslandi er einangraður og telur u.þ.b. 85 varppör. Erfðabreytileiki stofnins er mótaður af lítilli stofnstærð og sérstaklega af niðursveiflu sem sem hófst um miðbik 19. aldar og var í lágmarki um 20 pör yfir í nær 60 ár og leiddi til hækkunar á skyldleikastuðli innan stofnsins. Til að svara spurningunni um hvort MHC-I gen í íslenskum haförnum séu mótuð af þessum flöskuhálsi í stofnstærð eða náttúrulegu vali, voru gögn fengin úr raðgreiningu á heildarerfðamengjum 73 hafarna frá fimm löndunum (Íslandi, Noregi, Danmörku, Eistlandi og Grænlandi). MHC-I gen voru staðsett og greind nánar m.t.t. samsetningar og breytileika. MHC-I gen í haförnum eru mótuð af endurteknum genatvöföldunum og niðurstöður benda til þess að náttúrulegt val viðhaldi breytileika á milli hliðstæðra svæða (e. paralogous regions). MHC-I gen sýndu háa arfblendni sem benti til frávika frá tilviljunarkendum samsetningum innan stofnana (Hardy-Weinberg jafnvægi). Greining á erfðamengjum baktería í blóði hafarnanna sýndi fram á tilvist erfðaefnis úr ólíkum ættum og mátti rekja einstaka amínósýruraðir til mögulegra sýkla. Samsetning baktería í haförnum var breytileg og vissar bakteríur voru tengdar við ákveðna umhverfis og sýkingaþætti (e. virulence). Breytileiki í MHC-I og nærliggjandi DNA- röðum voru einnig skimum fyrir tengslum við umhverfis- og sýkingaþætti. Engin marktæk tengsl greindust fyrir MHC-I, hinsvegar hafði breytileiki innan tengslablokkar sem staðsett var fyrir framan genið, marktæk tengsl við fjölda sýkingargena í blóði hafarna.
Source: Skemman
Author: Hafrún Gunnarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Genetics
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045785660
Cites: 144
Cited by:
Related to: 10