Work

Blindblettir í stuðningi og ráðgjöf: Eigindleg rannsókn á brotthvarfi nemenda með ADHD úr framhaldsskóla

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna og reyna koma auga á hvort einhverjir blindbletti eru í stuðningsúrræðum innan skólakerfisins við nemendur með ADHD. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekið var viðtal við sjö einstaklinga með ADHD sem kláruðu ekki framhaldsskóla, þar af voru sex karlar og ein kona. Rannsóknarsnið fyrirbærafræði var notað til að kanna hvaða upplifun viðmælendur höfðu af skólagöngu sinni, með áherslu á úrræði innan skólakerfisins og hvaða tillögur að úrbótum þeir hefðu út frá því. Þar að auki var kannað hvaða ástæður voru á bak við brotthvarf viðmælenda úr námi. Niðurstöður sýndu að flestir höfðu neikvæða upplifun af skólagöngu sinni og greindu frá neikvæðu viðhorfi kennara og skilningsleysi á ADHD einkennum, sem leiddi til refsingar frekar en stuðnings. Helstu ástæður brotthvarfs voru einstaklingsbundnar, svo sem félagskvíði, slakur námsárangur eða að viðmælendur sáu ekki tilganginn með því að vera í námi. Þar að auki voru erfiðar heimilisaðstæður eða skortur á stuðning frá foreldrum einnig þættir sem höfðu áhrif á brotthvarf þeirra. Viðmælendur lögðu til að efla þyrfti náms- og starfsfræðslu, auk þess að skólaumhverfið mætti að vera meira hvetjandi og stuðst væri við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Þessar niðurstöður benda til þess að endurskoða þurfi útfærslu stuðningsúrræða innan skólakerfisins með það í huga að mæta betur þörfum nemenda með ADHD, meðal annars með því að efla náms- og starfsfræðslu, skapa hvetjandi skólaumhverfi og innleiða fjölbreyttari kennsluaðferðir í takt við sérþarfir nemenda.
Source: Skemman
Author: Þórhildur Andrea Björnsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045788017
Cites: 47
Cited by:
Related to: 10