Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Hlutfall eldra fólks fer vaxandi í heiminum en sá hópur er líklegri til að hreyfa sig minna og vera í aukinni hættu á að þróa með sér þunglyndi miðað við yngri hópa. Rannsóknir hafa sýnt að efla megi geðheilsu með daglegri hreyfingu. Markmið: Að rannsaka daglega hreyfingu við mismunandi aðstæður (frístundir, heimilisstörf og vinna) meðal eldri (≥ 65 ára) Norðlendinga og hvernig daglega hreyfingin tengdist þunglyndiseinkennum. Tekið var tillit til mögulegra áhrifa búsetu, kyns eða aldurshóps. \nAðferðir: Rannsóknargögnum var safnað í september 2017 til janúar 2018 í þversniðsrannsókn með lagskiptu slembiúrtaki. Þátttakendur voru 175 talsins, á aldrinum 65-92 ára, karlar (n=100) og konur (n=75), búsettir utan stofnana á Norðurlandi í þéttbýli (n=105) og dreifbýli (n=70). Spurningalistinn Mat á líkamsvirkni aldraðra (MLA) var notaður til að meta daglega hreyfingu. Hann skiptist í heildarkvarða og þrjá undirkvarða sem meta hreyfingu við frístundir, heimilisstörf og vinnu sem er ýmist launa- eða sjálfboðavinna. Spurningalistinn Geriatric Depression Scale (GDS) var notaður til að meta þunglyndiseinkenni. \nNiðurstöður: Heildarhreyfing tengdist ekki búsetu en karlar hreyfðu sig meira en konur og yngri aldurshópur (65-74 ára) meira en eldri aldurshópur (75-92 ára). Hreyfing tengd heimilisstörfum var algengust í öllum hópum. Dreifbýlisbúar hreyfðu sig meira en þéttbýlisbúar við vinnu og yngri aldurshópur meira en eldri. Karlar hreyfðu sig meira en konur við heimilisstörf. Aukin heildarhreyfing og hreyfing í undirkvörðum MLA tengdist minni þunglyndiseinkennum. Hreyfing í frístundum var eini undirkvarðinn sem hafði marktæk tengsl við minni þunglyndiseinkenni þegar tekið var tillit til annarra undirkvarða MLA. \nÁlyktun: Niðurstöður bæta við mikilvægri þekkingu á daglegri hreyfingu eldri Norðlendinga og sambandinu milli þunglyndiseinkenna og hreyfingar á efri árum. Þær benda til þess að þótt öll dagleg hreyfing sé af hinu góða geti áhersla á hreyfingu í frístundum mögulega skilað mestum árangri varðandi geðheilsu.
Source: Skemman
Author: Birgitta Rún Smáradóttir 1995-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046190691
