Work

Cytotoxic properties of amyloidogenic L68Q cystatin C. A search for therapeutic agents

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Mýlildissjúkdómar einkennast af villu í umbroti utanfrumupróteina sem veldur uppsöfnun þeirra og útfellingu í torleysandlega þræði. Þetta getur hindrað starfsemi líffærisins sem verður fyrir uppsöfnunni. Tveir slíkir sjúkdómar eru arfgeng heilablæðing og Alzheimer´s sjúkdómur. Í arfgengri heilablæðingu er stökkbreytt cystatin C mýlildi að falla út í heilaæðum sjúklinga. Í Alzheimer´s sjúkdómi er það beta-prótein amyloid sem fellur út í heilavef og heilaæðar sjúklinga. Bæði veldur því að sléttvöðvafrumur í heilaæðum deyja, hverfa og skilja eftir veiklaðan æðavegg með aukinni áhættu á heilablóðföllum. Í arfgengri heilablæðingu er meðalaldurinn um 30 ára vegna slíkra heilablóðfalla. Mýlildis myndunin hefur reynst eitruð fyrir taugafrumur og sléttvöðvafrumur. Í þessu verkefni er leitast við að kanna eitrunaráhrif bæði mýlildismyndandi cystatin C á sléttvöðvafrumur og PC12 frumur. Notast er við ATP-lusiferin-lusiferasa mælingar til að meta lífvænleika frumnanna. Þekktir þættir, líkt og humanin, vitamin E og tramiprosate, hafa sýnt sig hafa verndandi áhrif gegn beta amyloid mýlildis eitrun á sléttvöðvafrumur. Þessir þættir eru einnig prófaðir gegn mýlildismyndandi cystatin C í von um að finna verndandi þátt.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046219874
Cites: 114
Cited by:
Related to: 10