Work

Díalektísk atferlismeðferð fyrir unglinga og foreldra þeirra: Árangursmat með einliðasniði

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Díalektísk atferlismeðferð (DAM) sem þróuð hefur verið af Marsha M. Linehan er byggð á róttækri atferlishyggju, núvitund og díalektískri heimspeki. Hún hefur reynst árangursrík þeim sem þjást af jaðarpersónuleikaröskun. Markmið þessarar rannsóknar var að mæla áhrif DAM á líðan unglinga sem eru með einkenni jaðarpersónuleikaröskunar og foreldra þeirra. Boðið hefur verið uppá þessa meðferð á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans síðan 2012 en ekkert árangursmat verið gert þar til nú. Þátttakendur voru þrír unglingar á aldrinum 13–18 ára og mæður þeirra. Við mat á meðferð voru notuð dagbókarkort og spurningarlistar fyrir meðferð, á meðferðartímabili og eftir að meðferð lauk. Spurningalistarnir sem voru notaðir meta meðal annars þunglyndi, kvíða, sjálfsskaða, tilfinningastjórnun og færni í núvitund. Þátttakendur skiluðu dagbókarkortum vikulega þar sem þeir skráðu tilfinningar og hegðun á hverjum degi. Unglingar fengu verðlaun fyrir skil á dagbókarkortum eftir að hafa skilað fjórum kortum. Áhrif meðferðar voru ólík milli þátttakenda en almennt var árangur lítill. Mikill breytileiki var á skráningu unglinga á dagbókarkortum. Meðferðin skilaði meiri breytingum á líðan foreldra en unglinga. Færni í núvitund breyttist lítið hjá þátttakendum á meðferðartímabili samkvæmt spurningalista um núvitund. Heildaráhrif meðferðar reyndust væg.
Source: Skemman
Author: Guðrún Ólafsdóttir 1984
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046427292
Cites: 20
Cited by: 2
Related to: 10