Work

Einmanaleiki - hinn faldi faraldur: Leiðir til að draga úr einmanaleika aldraðra sem búa heima

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Einmanaleiki er vaxandi vandamál sem eykst samhliða hlutfallslegri fjölgun aldraðra á heimsvísu. Rannsóknir sýna að allt að 35% aldraðra einstaklinga þjást af einmanaleika sem getur haft slæmar heilsufarslegar afleiðingar. Skortur er á umfjöllun um úrræði til þess að draga úr einmanaleika aldraðra einstaklinga sem búa heima. \nTilgangur: Tilgangur samantektarinnar var að skoða árangursrík úrræði við einmanaleika aldraðra sem búa heima. Það er okkar von að samantektin nýtist til þess að vekja athygli á og í kjölfarið stemma stigu við þessu algenga og alvarlega vandamáli. \nAðferð: Gerð var fræðileg samantekt sem byggir á 10 rannsóknum sem voru ýmist eigindlegar, megindlegar eða yfirlitsgreinar. Við gagnasöfnun voru notaðir gagnagrunnarnir Pubmed og Cinahl. Rannsóknarspurning samantektarinnar var þróuð með PICO-viðmiðum og stuðst var við PRISMA-flæðirit við leit að rannsóknum. Gæði rannsókna voru metin með hliðsjón af viðmiðum um vandaðar rannsóknir. Einnig voru rannsóknir samantektarinnar settar upp í töflu þar sem fram koma helstu niðurstöður og úrræði hverrar rannsóknar fyrir sig. \nNiðurstöður: Þær 10 rannsóknir sem stóðust inntöku- og útilokunarskilyrði sýndu fram á 14 árangursrík úrræði sem draga úr einmanaleika aldraðra einstaklinga sem búa heima. Úrræðin skiptust í þrjá flokka og tengdust ýmist hugsunarhætti einstaklings, félagslegum stuðningi eða tækifærum á félagslegum samskiptum. Fyrsti flokkurinn sneri að hugsunarhætti einstaklings og er frábrugðin hinum tveimur flokkunum vegna þess að einungis var unnið með upplifanir og hugsanir einstaklingsins en ekki leitað á önnur mið. Annar flokkurinn tengdist félagslegum stuðningi en sá stuðningur gat komið úr ýmsum áttum meðal annars frá fjölskyldumeðlimum, vinum, dýrum, samtökum eða heilbrigðisstarfsfólki. Þriðji og síðasti flokkurinn fól í sér að uppræta hindranir og skapa aðstæður sem efldu félagslega hæfni og juku tækifæri til félagslegra samskipta. \nÁlyktun: Til þess að veita öldruðum einstaklingum sem þjást af einmanaleika viðeigandi þjónustu þarf að auka umræðu og þekkingu um einmanaleika og þau úrræði sem geta minnkað þá tilfinningu. Skortur er á nákvæmum og kerfisbundnum rannsóknum um einmanaleika aldraðra þá sérstaklega út frá hjúkrunarfræðilegri nálgun. Oft á tíðum er starfsfólk heimaþjónustu eini tengiliður aldraðra einstaklinga við umheiminn og því eru þeir í lykilstöðu til þess að veita þeim aðstoð. \nLykilorð: Einmanaleiki, aldraðir einstaklingar, úrræði, heimahjúkrun.
Source: Skemman
Authors: Aníta Jóhannesardóttir, Þorbjörg Ólafsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046646595
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10