Work

Endurhæfing og krabbamein : viðhorf, ánægja, líðan og bjargráð sjúklinga á Norðurlandi í meðferð

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur rannsóknar: Endurhæfing krabbameinssjúklinga er nauðsynleg til að auka lífsgæði og viðhalda getu. Fylgikvillar sjúkdómsins og meðferðarinnar eru flóknir og erfiðir. Krabbameinssjúklingar þurfa stuðning og hvatningu til að takast á við þessa fylgikvilla. Sífellt fleiri greinast með krabbamein og er það alþjóðlegt vandamál. Endurhæfing felur í sér ýmis úrræði þar sem unnið er með andlega, líkamlega- og sálfélagslega líðan. Tilgangur rannsóknar: Helsti tilgangur rannsóknarinnar var að kanna viðhorf einstaklinga í meðferð vegna krabbameins til endurhæfingarþjónustu á Norðurlandi. Kanna ánægju þeirra með endurhæfingarþjónustuna, líðan þeirra og bjargráð. Aðferðarfræði: Valin var eigindleg fyrirbærafræðileg rannsóknaraðferð og viðtöl notuð til að afla gagna. Stuðst var við hálfstaðlaðan viðtalsramma við gagnaöflun. Tekin voru níu viðtöl og þau gagnagreind með innihaldsgreiningu. Rýnt var í innihald textans sem var flokkaður og tilvitnanir sem tengdust settar saman og merktar. Texti var flokkaður í þemu eftir innihaldi hans. Undirliggjandi merking allra þáttanna var sett saman í einn yfirflokk sem lýsti viðhorfum og reynslu krabbameinssjúklinga á Norðurlandi af endurhæfingu á svæðinu. Niðurstöður: Skilgreining þátttakenda á endurhæfingarþjónustu krabbameinssjúklinga á Norðurlandi var: Andleg og líkamleg líðan, sjálfsbjargarviðleitni og tilviljanir ráða úrslitum um markvissa endurhæfingarþjónusta fyrir krabbameinsveika einstaklinga á Norðurlandi. Fjögur meginþemu komu fram: Viðhorf og ánægja með þjónustuna, Þarfir krabbameinssjúklinga í lyfjameðferð, Bjargráð og Áhrifaþættir á lífsgæði. Hvert þema stóð fyrir nokkrum undirþemum. Niðurstöður gáfu vísbendingar um að skortur væri á markvissri endurhæfingarþjónustu fyrir krabbameinssjúklinga á Norðurlandi. Einnig komu fram vísbendingar um þörf á aukinni jafningjafræðslu og stuðningi við fjölskyldur krabbameinssjúklinga. Ályktun: Mikilvægt er að bæta endurhæfingu krabbameinssjúklinga á Norðurlandi. Byggja þarf upp markvissa endurhæfingu sem sjálfsagðan hluta meðferðar sem fer í gang við greiningu krabbameins. Mikilvægt er að til staðar sé fagfólk sem hjálpar krabbameinssjúklingum og fjölskyldum þeirra að byggja upp andlegt, líkamlegt og félagslegt þrek. Ráðgjöf þarf að vera til staðar sem bæði hinn veiki og aðstandendur geta leitað til.
Source: Skemman
Author: Eygló Brynja Björnsdóttir 1975
Language: Icelandic
Subfield: Oncology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046787710
Cites: 70
Cited by: 1
Related to: 10