Einhverfurófið og svefn : fræðileg úttekt á meðferðarúrræðum og virkni þeirra
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Svefnvandamál eru tíð meðal barna með einhverfurófsröskun (ASD). Þessi svefnvandamál geta leitt til frekari vandamála eins og t.d. verri hegðunarmynsturs og slakari taugaþroska. Einnig greina foreldrar barna með ASD frá því að svefnvandamál séu þeim íþyngjandi og skerði töluvert lífsgæði innan fjölskyldunnar. Svefntengd meðferðarúrræði geta því skipt sköpum þegar um er að ræða heilsu, lífsgleði og þroska barna með ASD sem og lífsgæði aðstandenda þeirra. Mikilvægt er að bæði klínískir starfsmenn og foreldrar séu meðvitaðir um virkni einstakra meðferðaúrræða þegar kemur að svefnvanda þessa hóps svo m.a. foreldrar geti tekið upplýstar ákvarðanir og klínískir starfsmenn eigi kost á eins heildsteyptri nálgun og mögulegt er. \n \nAðferð: Í þessari fræðilegu úttekt (literature review) tók höfundur saman yfirlit yfir rannsóknir og greinar sem skoða svefntengd meðferðarúrræði fyrir börn með ASD og greinir frá virkni þeirra. Úttektina má nota sem ákveðnar leiðbeiningar í klínísku starfi þar sem hún gefur gott yfirlit yfir þau meðferðarúrræði sem kostur er á. Hinsvegar leggur höfundur áherslu á það að klínísk dómgreind sé höfð að leiðarljósi samhliða notkun hennar. \n \nNiðurstöður: Niðurstöður sýnda að úrval meðferðaúrræða er breitt en þó er almennur skortur á rannsóknargrunni flestra úrræða á þessu sviði. Lyfjameðferð með melatóníni og atferlismeðferð með slokknun hafa verið mest rannsökuðu inngripin hingað til og sýna almennt góða virkni. Flest meðferðarúrræði sýna einhverjar jákvæðar niðurstöður og lofa góðu fyrir framtíð klínískrar starfsemi. Eitthvað ójafnvægi er á milli rannsóknarniðurstaðna sem gefur til kynna að sum atriði eru einstaklingsbundin. \n \nUmræða: Mikilvægt er að starfsmenn hafi ávallt í huga einstaklingsmun barna með ASD þegar meðferðaráætlun er unnin og að hún sé einnig gerð með barnsins nánasta umhverfi og aðstandendur í huga. Niðurstöður úttektarinnar varpa ljósi á það hversu mikilvægt er að frekari rannsóknargrunnur sé byggður á þessu sviði svo bæta megi svefntengda meðferðarnálgun klínískra stétta þegar kemur að börnum með ASD og umönnunaraðilum þeirra. \n \nLykilorð: einhverfurófið, ASD, svefnraskanir, meðferðarúrræði, inngrip, klínísk sálfræði
Source: Skemman
Author: María Kristín H. Antonsdóttir 1990
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046896050
