Eiga brjóstagjöf og svefn ungbarna samleið? Væntingar og veruleiki
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Hjúkrunarfræðingar gegna mikilvægu hlutverki í heilsuvernd ung- og smábarna á Íslandi. Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar er að skoða ávinning brjóstagjafar, þróun ólíkra uppeldisstefna og hvort að brjóstagjöf og nætursvefn ungbarna geti átt samleið. Öflun gagna fór helst fram á PubMed, ScienceDirect, Ovid, EbscoHost og Cinahl. Einnig var notast við Google Scholar. \nÁ 19. öld tengdist há tíðni ungbarnadauða lélegri næringu barna sem ekki voru alin á brjóstamjólk og hafði skortur á hreinlæti einnig mikil áhrif. Áherslur í umönnun tóku miklum breytingum á 20. öld og áttu miklar öfgar nokkru fylgi að fagna. Rannsóknir á seinni hluta 20. og í byrjun 21. aldar sýndu að umönnun barna hefur áhrif á hvernig heili þeirra þroskast. Ráðgjöf um svefn ungbarna þróaðist með öðrum hætti og er enn mikil áhersla lögð á atferlismótun barna á svefntíma. Rannsóknir hafa sýnt að svefn ungbarna þróast með ólíkum hætti eftir því hvort þau eru alin á brjóstamjólk eða þurrmjólk og að næturvaknanir eru mikilvægar fyrir framleiðslu brjóstamjólkur. Þó er enn algengt að forsendur svefnráðgjafar feli í sér að barn þurfi að öðlast hæfileikann til að róa sig sjálft án aðstoðar foreldra. Rannsóknir á samsvefni sýndu að hann jók svefn foreldra, auðveldaði brjóstagjöf og dró úr gráti ungbarna. Ráðleggingar til foreldra og heilbrigðisstarfsfólks um svefn ungbarna taka ekki mið af því hvort börn eru alin á brjóstamjólk eða þurrmjólk þrátt fyrir skýran mun á svefnvenjum þessara tveggja hópa. Í nútímasamfélagi eru kostir brjóstagjafar ef til vill ekki eins augljósir á einstaklingsgrundvelli og þeir eru fyrir samfélög þar sem hreinlæti og heilbrigðisþjónustu er ábótavant. \nÍ heilsufarsskoðunum gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri til að styðja og fræða foreldra ungbarna eftir þörfum og því er mikilvægt fyrir hjúkrunarfræðinga að búa yfir þekkingarfræðilegum grunni er lýtur að uppeldisaðferðum, brjóstagjöf og andlegri líðan foreldra og barna, um leið og fylgst er með líkamlegum þroska barns. \n \nLykilorð: Brjóstagjöf, svefn ungbarna, samsvefn, skyndidauði ungbarna, uppeldisstefnur.
Source: Skemman
Authors: Ólafía Sólveig Einarsdóttir 1978, Berglind A. Zoëga Magnúsdóttir 1981
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046908635
