Work

Endurnærandi áhrif náttúrunnar á sálræna vellíðan fullorðinna Íslendinga: Þversniðsrannsókn

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Sýnt hefur verið fram á að náttúran getur haft jákvæð áhrif á sálræna líðan en lítið er vitað um áhrif eftir kyni eða búsetu. Tilgangur þessarar rannsóknar var að lýsa þeim áhrifum sem náttúran getur haft á sálræna vellíðan fullorðinna Íslendinga. \nAðferð: Rannsóknin var þversniðsrannsókn, framkvæmd í 65 löndum og var unnið með íslenska hluta hennar hér. Rafrænn spurningalisti var sendur til 960 Íslendinga 18 ára og eldri sem voru hluti af netpanel Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Notast var við mælitækin ROS og NES til að mæla endurnærandi áhrif og snertingu við náttúruna. Gerð voru fylgnipróf, tilgátuprófanir, og línuleg aðhvarfsgreining. \nNiðurstöður: Svörun var 56,25%. Þátttakendur voru 19-93 ára; meðalaldur 54,35 ár. Konur voru 51,95% og 57,04% þátttakenda bjuggu á höfuðborgarsvæðinu. Ekki voru marktæk tengsl á milli endurnærandi áhrifa náttúrunnar og aldurs (p=0,672). Marktæk tengsl voru á milli þess hversu mikla og hversu oft þátttakendur áttu í snertingu við náttúruna og hversu mikil endurnærandi áhrif þeir upplifðu (p<0,001). Marktækur munur var á hversu mikla og hversu oft þátttakendur áttu í snertingu við náttúruna eftir búsetu, en ekki eftir kyni. Þeir sem bjuggu á landsbyggðinni voru í meiri snertingu við náttúruna í daglegu lífi og tóku meira eftir henni en þeir sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu. Konur upplifðu meiri endurnærandi áhrif af náttúrunni en karlar (p<0,01) og háskólamenntaðir meiri en þátttakendur með aðra prófgráðu (p<0,001). Ekki var marktækur munur á upplifun endurnærandi áhrifa af náttúrunni eftir búsetu (p=0,498). Línuleg aðhvarfsgreining sýndi að kyn, aldur, búseta, menntun og snerting við náttúruna skýrðu 36,33% af áhrifum náttúrunnar á sálræna vellíðan (R2 =0,3633). \nÁlyktanir: Niðurstöður sýna fram á jákvæð áhrif náttúrunnar á sálræna vellíðan en getur verið misjöfn eftir hópum. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingar séu meðvitaðir um mátt útiveru á sálræna vellíðan skjólstæðinga sinna. \n \nLykilorð: Snerting við náttúruna, endurnærandi áhrif náttúrunnar, sálræn vellíðan, kyn, búseta.
Source: Skemman
Author: Viktoría Sif Viðarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Urban Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046921332
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10