Eyrnasuð (tinnitus) meðal íslenskra flugmanna
Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Eyrnasuð (tinnitus) meðal íslenskra flugmanna. \nSindri Stefánsson1, Einar Jón Einarsson, Msc,1 Hannes Petersen, MD, PhD1,2 \n1Læknadeild Háskóla Íslands, Reykjavík, Ísland; 2Háls- nef- og eyrnadeild Landspítalans, Reykjavík, Ísland. \n \nInngangur: Eyrnasuð er algengt í nútímasamfélagi og getur haft alvarleg áhrif bæði á atvinnu og einkalíf, en þriðjungur allra fullorðinna segist hafa upplifað eyrnasuð einhvern tímann á lífsleiðinni. Heyrnarskaði af völdum hávaða er talinn einn af aðalorsakavöldum eyrnasuðs, en í starfi sínu eru flugmenn oft útsettir fyrir miklum hávaða löngum stundum. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna umfang og eðli eyrnasuðs meðal íslenskra flugmanna. \n \nEfniviður og aðferðir: Tilfella-viðmiðunarrannsókn (case-control) á 204 flugmönnum. Lagðir voru spurningalistar fyrir alla félagsmenn Félags Íslenskra Atvinnuflugmanna (FÍA) (n = 614) og upplýsingum safnað frá þeim sem svöruðu (n = 204). Á 51 manna úrtaki voru einnig gerðar heyrnarmælingar (Pure Tone Audiometry (PTA) og Distortion Product Otoacoustic Emission (DPOAE)) eða nýlegar mælingar notaðar. \n \nNiðurstöður: Af 204 þátttakendum sögðust 121 (60%) hafa upplifað eyrnasuð lengur en í 5 mínútur einhvern tímann á ævinni, en 96 (47%) sögðust hafa upplifað eyrnasuð á síðastliðnum 12 mánuðum. Þá voru 57 (28%) þátttakendur oft eða stöðugt með eyrnasuð. Alvarleiki eyrnasuðs hvers þátttakanda var greindur með Tinnitus Handicap Inventory (THI) í flokkana lítið sem ekkert eyrnasuð (n = 185), vægt eyrnasuð (n = 14), meðalmikið eyrnasuð (n = 5), alvarlegt eyrnasuð (n = 0) og mjög alvarlegt eyrnasuð (n = 0). Um 82% sögðust litlar eða engar áhyggjur hafa af eyrnasuðinu en 96% sögðu suðið hafa lítil eða engin áhrif á getu sína til að lifa eðlilegu lífi. Heyrnarþröskuldar hækkuðu með hækkandi THI-flokki. Marktæk neikvæð fylgni var milli heyrnarþröskulda (PTA) og hljóðsvars innra eyrans (DPOAE). \n \nÁlyktanir: Út frá niðurstöðum rannsóknarinnar er greinilegt að flugmenn eru oft útsettir fyrir miklum hávaða í starfi sínu. Niðurstöður rannsóknarinnar virðast styðja þá tilgátu að eyrnasuð sé algengara hjá flugmönnum en öðrum starfsstéttum, en þó virðist alvarleiki eyrnasuðsins í flestum tilvikum ekki vera það mikill að hann hafi áhrif á einkalíf einstaklingsins.
Source: Skemman
Author: Sindri Stefánsson 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sensory Systems
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7046968102
