Work

„Ég gat hleypt skugganum út og ljósinu inn“ : reynsla kvenna af notkun psilocybins með stuðningi fagaðila

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Efnið psilocybin, sem finnst í nokkrum tegundum sveppa, veldur hugvíkkandi áhrifum. Á undanförnum árum hafa verið gerðar allmargar rannsóknir á psilocybini í meðferðarskyni og sýna niðurstöður að með stuðningi fagaðila getur það verið gagnlegt við þunglyndi, kvíða og öðrum geðrænum áskorunum. \nTilgangur: Að skoða reynslu kvenna af notkun psilocybins með stuðningi fagaðila til að auka þekkingu og skilning á viðfangsefninu, skoða heilsufarslegan ávinning og bæta þjónustu. \nAðferð: Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru sjö konur sem höfðu notað psilocybin með stuðningi fagaðila tvisvar sinnum eða oftar. Þær voru valdar með tilgangs- og snjóboltaúrtaki og tekin tvö viðtöl við hverja. \nNiðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar er: „Ég gat hleypt skugganum út og ljósinu inn“. Meginþemu eru fjögur: Áfallasaga og sjálfsvinna fyrir notkun psilocybins, heilsufarsleg vandamál, upplifun af psilosybin og stuðningur fagaðila og árangur. Allar konurnar höfðu jákvæða reynslu af upplifuninni. Þær töldu að hún hefði bætt andlega og líkamlega heilsu þeirra og sögðust hafa fundið fyrir bættri sjálfsmynd og minni verkjum, kvíða og þunglyndi. Konurnar lýstu hvernig psilocybin hefði hjálpað þeim að losna úr neikvæðum hugsunum og beint þeim á hvaða tilfinningar þær þyrftu að vinna með. Þær hefðu rifjað upp gleymda og bælda atburði sem hafi hjálpað þeim að sjá rót vandamála sinna. Þátttakendur lögðu allir áherslu á mikilvægi stuðnings fagaðila. \nÁlyktun: Psilocybin getur verið gagnlegt verkfæri fyrir einstaklinga í sjálfsvinnu, sé rétt að notkun staðið og hún sé með stuðningi fagaðila. Á meðan psilocybin er ólöglegt og notkun þess fer fram fyrir luktum dyrum eykst hættan á að ófaglærðir aðilar bjóði upp á slíka þjónustu sem getur bitnað á heilsu og líðan einstaklingsins og aukið álag á heilbrigðiskerfið. Mikilvægt er að þróa gagnreyndar klínískar leiðbeiningar um notkun psilocybins með stuðningi fagaðila til að tryggja öryggið.
Source: Skemman
Author: Thelma Lind Guðmundsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047030600
Cites: 52
Cited by:
Related to: 10