Work

Er fylgni milli styrks hugsýna og hrifningar, áhuga og sækni í mismunandi listform?

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Hugsýnir – eða hversu sterkt við sjáum hluti fyrir okkur – geta haft áhrif á daglegt líf okkar á margan hátt, meðal annars í vali á störfum. Í eftirfarandi rannsókn var framkvæmd gagnakönnun til að skoða hvort fylgni fyndist á milli styrks hugsýna og hrifningar, áhuga, og sækni í mismunandi listform. Notast var við dultengslapróf (e. Implicit Association Test) og stigagjöf á málverkum til að mæla hvort þátttakendur hrifust meira að abstrakt eða raunsærri list, og Vividness of Visual Imagery Questionnaire (VVIQ) til að mæla styrk hugsýna. Eins voru þátttakendur beðnir um að svara spurningalista sem innihélt spurningar um ánægju, áhuga, innlifun og sækni í ýmis listform og afþreygingu, svo sem bókmenntir, tónlist, hlaðvörp og listviðburði. Úr nokkrum þeirra spurninga voru búnir til undirkvarðar sem taldir voru mæla innlifun tengda hugsýnum fyrir hvern flokk. Nokkur fylgni fannst milli VVIQ og hvers undirkvarða. Dreifing á VVIQ var í samræmi við niðurstöður fyrri rannsókna. Niðurstöður dultengslaprófs og stigagjafar bentu til þess að fólk væri almennt hrifnara af raunsæjum málverkum sem er í samræmi við fyrri rannsóknir, en ekki fannst fylgni milli styrks hugsýna út frá skori á VVIQ og hrifningar af abstrakt eða raunsærri list. Ekki var heldur fylgni milli VVIQ og áhuga á list. Hins vegar fannst jákvæð fylgni milli undirkvarða fyrir innlifun tengdri hugsýnum og ánægju af lestri og hlustun á hljóðbækur, hlaðvörp og tónlist. Þrátt fyrir að ekki megi álykta um orsakasambönd út frá rannsókninni gefur hún vísbendingar um að hugsýnir tengist upplifun af bókmenntum, hlaðvörpum og tónlist að einhverju leyti.
Source: Skemman
Authors: Silja Rós M Wang Auðunsdóttir 1993-, Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir 1981-
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047177723
Cites: 59
Cited by:
Related to: 10