Work

Forvarnarlegt gildi foreldra : vímuefnaneysla unglinga og samskipti við foreldra

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Verkefnið er unnið út frá niðurstöðum ESPAD gagna frá árum 2007 og 2015. ESPAD rannsóknin er gerð á fjögurra ára fresti, víðsvegar um Evrópu og eru þátttakendur grunnskólabörn á aldrinum 15-16 ára (ESPAD, 2018). Markmið rannsóknarinnar er að skoða vímuefnaneyslu unglinga á Íslandi, með tilliti til samskipta þeirra við foreldra. Vímuefnaneysla er hér notað sem yfirheiti yfir áfengisneyslu og öll önnur ávanabindandi efni. Tilgátan sem sett er fram er sú að foreldrar hafi forvarnarlegt gildi og að góð samskipti unglinga við foreldra, dragi úr líkum á vímuefnaneyslu. Samskipti er hér notað sem yfirheiti yfir samskipti unglinga við foreldra, heildræn samskipti innan heimilis, heimilsaðstæður, tilfinningalegan stuðning og eftirlit foreldra. Auk ESPAD var öðrum gögnum safnað um sama efni og reyndust niðurstöður ESPAD styðja það sem áður hefur verið sett fram varðandi efnið. \n\tNiðurstöðurnar rannsóknarinnar leiddu í ljós að reykingar, áfengis- og vímuefnaneysla hefur farið dvínandi hérlendis undanfarin ár. Einnig benda niðurstöður til þess að góð samskipti séu áhrifaríkur þáttur í að draga úr líkunum á vímuefnaneyslu og virðist vera að foreldrar geti spilað forvarnarlegt hlutverk í lífi barna sinna. Eftir því sem samskipti við foreldra eru betri, því minni líkur eru á að unglingar hafi prufað vímuefni.
Source: Skemman
Authors: Alda Friðný Áskelsdóttir 1984, Anna María Hjelvik Kristinsdóttir 1990
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047343450
Cites: 34
Cited by:
Related to: 10