Hreyfing og námsárangur
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Það er vel þekkt að hreyfing hafi góð áhrif á heilsu einstaklinga, bæði líkamlega og andlega. Minna þekkt samband er hinsvegar tengsl á milli hreyfingar og og námsárangurs. Hafa niðurstöður rannsókna á því sviði bent til að hreyfing geti haft áhrif á námsárangur. Tilgangur ritgerðarinnar var að vekja athygli á mismunandi aðferðum á kennslu og lærdóm með því að nota hreyfingu. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er hvort hreyfing hafi áhrif á námsárangur. Skoðaðar voru rannsóknir um tengsl hreyfingar og námsárangur. Einnig voru kennsluaðferðir þar sem notast var við hreyfingu í kennslustund skoðaðar. Niðurstöður rannsókna sýna að hreyfing getur haft jákvæð áhrif á námsárangur og það á einnig við um hreyfitengdar kennsluaðferðir. Er það því mikilvægt að fræða almenning og ýta undir mikilvægi hreyfingar svo hægt sé að njóta góðs af henni, sérstaklega á tímum þar sem skjánotkun hefur aukist til muna.
Source: Skemman
Author: Júlíus Arnar Pálsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047386418
