Fitufordómar: Hvað eru fitufordómar, og hafa þeir afleiðingar á konur í nútíma samfélagi ?
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Fitufordómar vísa til neikvæðra viðhorfa til einstaklinga í yfirþyngd. Þessi viðhorf eru oft á tíðum knúin áfram af neikvæðum staðalmyndum, félagslegri höfnun og mismunun. Bæði konur og karlar verða fyrir fitufordómum, en rannsóknir sýna að upplifun kvenna er sterkari og afleiðingar verri en hjá körlum. Feitar konur eru líklegri til þess að verða fyrir fordómum af hálfu heilbrigðismanna en grannar konur. Læknar eru tregari við það að framkvæma rannsóknir á feitum konum og veita þeim lakari þjónustu. Konur í yfirþyngd fá lægri laun, verða fyrir mismunun þegar kemur að stöðuhækkun og er jafnvel sagt upp vegna þyngdar. Konur upplifa 25% meiri mismunun á grundvelli þyngdar á vinnustöðum sínum, og rúmlega helmingur upplifir fordóma frá samstarfsfólki. Feitar konur upplifa einnig fordóma í einkalífi sínu frá sínu nærsamfélagi og eru þær líklegri til þess að vera í óhamingjusömum samböndum. \n\tMargir telja að fitufordómar séu í raun ekkert annað en hvatning til feitra einstaklinga um að hreyfa sig meira og hugsa betur um heilsuna. Raunin er þó sú að einstaklingar sem verða fyrir fitufordómum eru líklegri til þess að innbyrða fleiri kaloríur, minnka líkamlega hreyfingu og viðhalda, jafnvel auka, óheilbrigðar matarvenjur sem leiða til aukinnar líkamsþyngdar. \n\tHelsta leiðin í baráttunni gegn fitufordómum er að fá fólk í kjörþyngd með í baráttuna með það að leiðarljósi að leiðrétta staðalímynd feitra einstaklinga. Mikilvægt er að einstaklingar í öllum þyngdarflokkum taki þátt í baráttunni, þar sem algengi neikvæðrar líkamsánægju og átraskana er óháð þyngd. Svo að jafnrétti náist, þurfa breytingar á hugafari að eiga sér stað, óháð þyngd og menningarlegum gildum.
Source: Skemman
Author: Rúna Sif Harðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Obesity and Health Practices
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047474005
