Hreyfing og kyrrseta þungaðra kvenna á Íslandi: Rannsóknaráætlun
Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Study Protocol
Abstract: Bakgrunnur: Ávinningur reglulegrar hreyfingar á meðgöngu er mikill, en þrátt fyrir það hafa erlendar rannsóknir sýnt fram á minnkaða hreyfingu og aukna kyrrsetu á meðgöngu. Engar slíkar rannsóknir virðast hafa verið gerðar hér á landi og er því þörf á að rannsaka efnið. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar er að rannsaka hreyfingu og kyrrsetu þungaðra kvenna á Íslandi og rýna í hvaða þættir geti haft hvetjandi og hindrandi áhrif á þátttöku þeirra í hreyfingu. Rannsakað verður hvort hreyfing, kyrrseta og form hreyfingar breytist eftir þriðjungum meðgöngu. \nAðferð: Byggt verður á blandaðri rannsóknaraðferð með samleitandi rannsóknarsniði. Þátttakendur verða þungaðar konur frá fjórum heilsugæslustöðvum af landinu, bæði úr dreifbýli og þéttbýli. Konurnar (N = 200) verða valdar með heildarúrtöku fyrir megindlegan hluta og með tilgangsúrtaki fyrir eigindlegan hluta (N = 20). Gagnasöfnun mun fara fram á sex mánaða tímabili. Megindlegra þversniðsgagna verður aflað þar sem hreyfing, kyrrseta og form hreyfingar verður rannsakað. Notast verður við bakgrunnsspurningar, staðlaðan spurningalista um hreyfingu (PPAQ) og ActiGraph hröðunarmæla. Rýnihópaviðtöl verða notuð til að afla eigindlegra gagna um hvata og hindranir til hreyfingar. Alls verða fjórir rýnihópar með sex þátttakendum í hverjum hóp. \nÁlyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar munu varpa ljósi á hvernig hreyfingu og kyrrsetu þungaðra kvenna er háttað hér á landi. Slíkar upplýsingar eru grunnur fyrir hvers konar fræðslu og forvarnir á sviðinu. Vegna sérþekkingar sjúkraþjálfara á hreyfingu gætu þeir gegnt lykilhlutverki við slíkar ráðleggingar.
Source: Skemman
Authors: Birna Pétursdóttir 1988, Fanney Magnúsdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: women's physical activity, physical inactivity, sedentary behavior, walking patterns, walking distance, walking breaks, barriers to walking, self-efficacy, self-determination, gender differences, age differences, research design, questionnaire development, ActiGraph, GPS tracking, accelerometry
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047540992
