Work

Hvaða afleiðingar hefur ofbeldi í nánum samböndum á þolendur þess og hverjar eru mögulegar forvarnarleiðir?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á þær ástæður sem geta leitt einstakling á þá braut að verða gerandi ofbeldis í nánu sambandi, áhrif og afleiðingar þess sem ofbeldið hefur á þolanda, ásamt forvarnarleiðum. Slíkt ofbeldi á sér stað um allan heim og er alvarlegur glæpur sem orsakast af mörgum þáttum. Mikilvægt er að gera grein fyrir hvað veldur slíku ofbeldi og vekja athygli á því í von um að minnka líkur á að það eigi sér stað. Rannsóknir hafa leitt í ljós að orsakaþættir gerenda séu mun flóknari og fjölbreyttari en haldið er og það sama má segja um afleiðingar þolenda. Vímuefnanotkun, ofbeldi í æsku og andleg heilsa eru hluti af þeim þáttum sem geta sagt til um orsakaþætti gerenda, á meðan hjartasjúkdómar, sjón- og heyrnarskemmdir og átraskanir eru hluti af þeim afleiðingum sem þolendur ofbeldis í nánum samböndum þurfa að kljást við. Réttarkerfið og heilbrigðisstofnanir eru meðal þeirra stofnana sem leggja áherslu á forvarnir gegn ofbeldi í nánum samböndum ásamt úrræðum sem einblína á að veita gerendum og þolendum aðstoð, með áherslu á aukna samskiptahæfileika og bætta framtíð.
Source: Skemman
Author: Gyða Ásdís Kristinsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047680546
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10