GPS landmælingar á Snæfellsnesi
Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Snæfellsnes telst vera hliðargosbelti þar sem lítil eða engin gliðnun á sér stað í dag. Hliðargosbeltið liggur um gamalt fráreksbelti sem var eitt af aðalfráreksbeltum landsins en dó út fyrir u.þ.b. 7 milljónum ára. Þrjú eldstöðvarkerfi finnast á Snæfellsnesi og telst gosbeltið virkt en hefur verið í dvala síðustu 1000 ár. Frá því að fyrstu GPS-mælingar fóru fram á Íslandi árið 1986, hefur kerfið verið notað til að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum sem verða á landinu. Sumarið 2004 var 13 punkta GPS-net mælt á Snæfellsnesi. GPS-netið afmarkast af Gullborgarhrauni (GUBO) austast á Snæfellsnesskaga að tá Snæfellsness (LOFT). Sumarið 2013 voru fyrstu endurmælingar gerðar á GPS-netinu frá árinu 2004. Hraðalausnir fyrir tímabilið 2004–2013 voru reiknaðir út frá mælingunum. Niðurstöður leiða í ljós að engar marktækar innbyrðis hreyfingar urðu í kringum Snæfellsjökul fyrir tímabilið 2004–2013. Hins vegar er Snæfellsnes að styttast að meðaltali um 1,4 ± 0,1 mm/ári. Að auki mældist landsig, sem varð að meðaltali um 0,6 ± 0,3 mm/ári á svæðinu í kringum Snæfellsjökul.
Source: Skemman
Author: Guðbjartur Helgi Kristinsson 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Geophysics
Field: Earth and Planetary Sciences
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047706455
