„Hvernig tengist þetta stærðfræði?“ : stærðfræðikennsla í fjölmenningarbekk
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Íslenskir skólar eru ekki lengur einsleitir heldur eru þeir að breytast í átt að verða að fjölmenningarskólum. Nemendur hafa annaðhvort fæðst og alist upp hér á landi eða flutt hingað hvaðanæva úr heiminum. Nemendur með ólíkan menningarlegan, félagsefnahagslegan og tungumálabakgrunn þurfa allir að stunda nám og meðal þess er að læra stærðfræði. Sumir þurfa einnig að læra íslensku og/eða aðlagast íslenskri menningu og nýjum félagslegum viðmiðum í skóla. Ritgerð þessi fjallar um rannsókn sem hafði það að markmiði að skoða hvernig mér tækist að bæta kennslu mína með sérstöku tilliti til nemenda af erlendum uppruna með því að finna, prófa og þróa leiðir sem stuðla að verðugu stærðfræðinámi. Rannsóknarspurningin er: Hvernig get ég þróað, framkvæmt og bætt stærðfræðikennslu í fjölmenningarbekk? Rannsóknin var starfendarannsókn þar sem ég rýndi í eigin kennslu og hvernig mér tókst að framkvæma hugmyndir um verðuga stærðfræðikennslu. Gögnum var safnað með rannsóknardagbók, vettvangsathugunum, verkefnum nemenda, ljósmyndum og samtölum við rannsóknarvin. Niðurstöður sýna að ég hafi ákveðnar hugmyndir um hvernig stærðfræðikennari ég vil vera og hvernig stærðfræðinám og –kennsla gagnast nemendum. Ég tel að sjálfstæð vinna nemenda í kennslubókum stuðli ekki að því að nemendur þrói með sér djúpan skilning og öðlist stærðfræðihæfni. Opin verkefni þar sem þarf að brjóta heilann, rannsaka og uppgötva ásamt verkefnum sem bjóða upp á myndræna framsetningu hjálpa nemendum í fjölmenningarbekk betur að tengjast og takast á við viðfangsefni stærðfræðinnar af meiri skilningi. Rannsóknin sýnir einnig að mikilvægt sé að hafa í huga hvernig félagsleg og félagstærðfræðileg viðmið nemendur eru búnir að tileinka sér, hvernig hugmyndir þeir hafa um stærðfræðinám og hvaða viðhorf og ímynd þeir hafa um stærðfræði. Neikvæð viðhorf nemenda og stofnuð viðmið í kennslustofu geta verið hindrun í að innleiða nýjar hugmyndir um verðuga stærðfræðikennslu og –nám. Með starfendarannsókninni lærði ég að tími og þolinmæði skipta miklu máli þegar kennari reynir að breyta kennsluháttum og gömlum venjum. Efnisorð: stærðfræðikennsla, stærðfræðinám, fjölmenningarbekkur, nemendur af erlendum uppruna, kennslusamningur, félagsleg og félagsstærðfræðileg viðmið
Source: Skemman
Author: Tanya Helgason 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: mathematics education, immigrant students, refugee students, inclusive education, student motivation, student self-assessment, student reflection, student feedback, student self-esteem, student self-regulation, student self-discipline, student self-care, student self-advocacy, student self-determination
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047806872
