Hvetjandi stjórnun, vinnuálag og starfsánægja : áhrif hvetjandi stjórnunar á vinnuálag og starfsánægju
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Hvatning og stuðningur yfirmanna eru mikilvægir þættir í ýmsum stjórnunarkenningum. Rannsóknir sýna fram á að á vinnustöðum þar sem slík stjórnun er viðhöfð geti hún haft jákvæð áhrif á starfsánægju undirmanna en einnig minnkað neikvæð áhrif ýmissa þátta í starfsumhverfinu á borð við of mikið vinnuálag. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða áhrif slíkrar stjórnunar við íslenskar aðstæður á vinnuálag og starfsánægju. Rannsóknin var megindleg og unnin upp úr gögnum Hjördísar Sigursteinsdóttur úr rannsókninni: Heilsa og vellíðan á vinnustað frá árinu 2015. Sendur var út spurningalisti og alls svöruðu honum 5464 einstaklingar frá 16 sveitarfélögum og var svarhlutfall 65,3%. Gögnin voru skoðuð út frá aldri og kyni með þessa þrjá þætti í huga þ.e.a.s hvetjandi stjórnun, vinnuálag og starfsánægju. Enn fremur voru skoðuð tengsl milli hvetjandi stjórnunar og vinnuálags og starfsánægju. \n\tRannsóknarspurningin var eftirfarandi: „Hvaða áhrif hefur hvetjandi stjórnun á vinnuálag og starfsánægju“? Niðurstöður leiddu í ljós að hvetjandi stjórnun hefur veik neikvæð tengsl við vinnuálag sem þýðir að hvetjandi stjórnun getur minnkað neikvæð áhrif vinnuálags. Einnig sýndu niðurstöðurnar miðlungs jákvæð tengsl milli hvetjandi stjórnunar og starfsánægju sem gefur til kynna að hvetjandi stjórnun auki starfsánægju. Ef niðurstöður fyrir kynin eru skoðuð þá má sjá að konur mælast hærri á öllum þremur þáttunum sem til skoðunar voru. Þær upplifa oftar hvetjandi stjórnun og meiri starfsánægju en karlar en einnig oftar mikið vinnuálag. Yngsti aldurshópurinn, 30 ára og yngri reyndist oftar upplifa hvetjandi stjórnun en hinir aldurshóparnir og einnig sjaldnar mikið vinnuálag. Mest var svo starfsánægjan hjá tveimur elstu hópunum eða því fólki sem var komið yfir fimmtugt. Þessar niðurstöður benda til að hvetjandi stjórnun hafi jákvæð áhrif á líðan starfsfólks á vinnustað og sé eitthvað sem stjórnendur ættu að skoða nánar með það í huga að mögulega sé hægt að auka starfsánægju og draga úr vinnuálagi á vinnustaðnum með meiri stuðningi og hvatningu við starfsfólkið. \nLykilhugtök: Hvetjandi stjórnun, vinnuálag, starfsánægja.
Source: Skemman
Authors: Sverrir Sigmar Björnsson, Guðjón Antoníusson
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: profit sharing, employee engagement, management practices, Icelandic companies, age and gender differences, organizational culture, job satisfaction, organizational commitment, organizational change, organizational development, organizational performance, organizational behavior, organizational behavior management, organizational behavior modification, organizational behavior change, organizational behavior improvement
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047830703
