Work

Á hraðferð í fæðingu : andleg líðan barnshafandi kvenna þar sem ekki er boðið upp á fæðingarþjónustu í heimabyggð

Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Study Protocol
Abstract: Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Mikil fækkun hefur verið á fæðingarstöðum hér á Íslandi síðastliðin ár. Hefur það orðið til þess að barnshafandi konur í dreifbýli þurfa oftar að sækja fæðingarþjónustu annað en í sinni heimabyggð. Fæðingar sem eiga sér stað á leið á fæðingarstað eru orðnar mun algengari síðan skráning þeirra hófst. Barnshafandi konur upplifa yfirleitt einhvern kvíða á meðgöngu sem er talið eðlilegt. Rannsóknir hafa þó sýnt að kvíði barnshafandi kvenna í dreifbýli virðist vera meiri en hjá konum í þéttbýli. Hafa þær áhyggjur af veðri, færð, hvort þær nái á fæðingarstað, aukakostnaði, aðskilnaði frá fjölskyldu og aðal stuðningsneti. Það má áætla út frá niðurstöðum fræðilega hlutans í ritgerðinni að kvíði hjá barnshafandi konum í dreifbýli muni aukast í kjölfar fækkunar á fæðingarstöðum á Íslandi. Tilgangur með verkefninu er að afla upplýsinga um andlega líðan barnshafandi kvenna sem þurfa að ferðast langa leið á fæðingarstað og setja fram rannsóknaráætlun um þetta efni. Rannsóknarspurningin sem lagt var upp með var svohljóðandi: Hvaða áhrif hefur það á andlega líðan kvenna á meðgöngu að ekki sé boðið upp á fæðingarþjónustu í þeirra heimabyggð? Eigindleg aðferðarfræði og fyrirbærafræðileg nálgun verður notuð í fyrirhugaðri rannsókn. Notast verður við tilgangsúrtak. Úrtakið verður 12 íslenskar barnshafandi konur á aldrinum 25-40 ára, bæði frum- og fjölbyrjur, sem búa í dreifbýli á Íslandi, þurfa að ferðast í hálfa klukkustund eða lengur á fæðingarstað og eru gengnar a.m.k. 27 vikur á leið. Gagna verður aflað með djúpum einstaklingsviðtölum. Leitað var að fræðilegum greinum á íslensku og ensku í gagnasöfnum Google Scholar, CINAHL (Ebsco Host) og PubMed.
Source: Skemman
Authors: Þórdís Ágústsdóttir 1989, Guðbjörg Þóra Snorradóttir 1968, Sólveig Sveinbjörnsdóttir 1968
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047874419
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10