Work

Hver er ástæða heimkomu eftir atvinnumannaferill íslenskra knattspyrnumanna? : árangurslaus umskipti

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Marga unga knattspyrnumenn dreymir um að verða atvinnumenn. Sá draumur rætist ekki hjá öllum en Ísland á þó marga atvinnumenn í knattspyrnu miða við höfðatölu. Við slíka ákvörðun verða umskipti í lífi íþróttamannsins, breytt lið, breytt umhverfi og breytt þjálfun. Umskiptin verða á einhverjum tímapunkti árangursrík eða árangurslaus og því er mikilvægt að huga að allskyns þáttum til að ýta enn frekar undir að þau verið árangursrík. Í rannsókninni voru fjórir karlkyns knattspyrnumenn teknir í viðtal, allt leikmenn sem fóru út sem atvinnumenn og komu aftur heim að spila í efstu deild á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða umskiptaferlið hjá íslenskum knattspyrnumönnum sem koma heim úr atvinnumennsku, skoða hindranir, úrræði, tilfinningar og ástæðu. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl og var viðtalsrammi smíðaður út frá líkani um umskipti í íþróttum (e. Cultural transition model). Líkanið segir frá þremur fösum sem íþróttamenn fara í gegnum, fyrirskipting (e. pre-transition phase), menningarleg aðlögun (e. Acute cutlural adaptation phase) og félagsleg aðlögun (e. sociocultural adaptation phase). Niðurstöðum var skipt upp í sex þemu út frá líkaninu, það var félagsliðið heima, undirbúningur, dagur í lífi, félagsliðið úti, hindranir og ákvörðun við heimkomu. Leikmennirnir áttu það allir sameiginlegt að vilja fara heim og fóru þeir allir í sitt uppeldisfélag þegar heim var komið.
Source: Skemman
Author: Steinar Þorsteinsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047881143
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10