Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Höfuðáverkar (HÁ) og innanskúmsblæðingar (ISB) valda dauða og varanlegri fötlun. Rannsóknir benda til að HÁ og ISB hafi áhrif á starfsemi fremri heiladingulsins í bæði bráða- og síðfasa TBI og SAH. Markmið rannsóknarinnar voru að meta eðli hormónabreytinga í bráðafasa miðlungs og alvarlegra HÁ og allra ISB. Að meta tengsl hormónabreytinga og alvarleika áfalls sem og lækkunar í blóðþrýstingi, súrefnismettun og blóðleysi. \n \nEfni og aðferðir: Rannsóknin var framsýn og framkvæmd á einni stofnun. Hormónaöxlar fremri heiladinguls voru metnir við innlögn (dag 0) með hormónamælingum og 6 dögum eftir áfall með hormónamælingum og Synacthen prófi. Úr sjúkraskrám bæði HÁ og ISB sjúklinga (sjkl.) var skráð GCS, APACHEII skor, lengd gjörgæslulegu, skráning á víkkun sjáaldurs, blóðþrýstingsfall og fall í súrefnismettun og blóðleysi með hemoglóbín gildi < 80 g/dL. Hunt og Hess skor var skráð fyrir ISB hóp og Injury Severity skor fyrir HÁ hóp. S100b var mælt í öllum sjkl. við innlögn. Í rannsókninni tóku þátt 21 HÁ sjkl., 6 með miðlungs alvarlegan HÁ og 15 með alvarlegan HÁ, og 19 ISB sjkl.. \n \nNiðurstöður: Sykursteraöxullinn: HÁ hópurinn hafði marktækt lægra kortisól en ISB hópurinn við innlögn, undir viðmiðunargildum voru 23,8% borið saman við 0% í ISB hópnum. Dag 6 var einn sjkl. í hvorum hóp sem hafði kortisól undir viðmiðunargildi, 6,7% af HÁ hópnum og 9,1% af ISB hópnum. Kynhormónaöxullinn: Í karlmönnum á degi 0 var truflun hjá 52,9% í HÁ hópnum og 57,1% í ISB hópnum. Á degi 6, 84,6% í HÁ hópnum og 90% í ISB hópnum. Það var meiri bæling á LH/FSH í HÁ hópnum. Skjaldkirtlishormónaöxullinn: Einn TBI sjkl. (5,9%) hafði miðlægan skjaldvakabrest á degi 6. Vaxtarhormónaöxullinn: Á degi 0 höfðu 52.4% í HÁ hópnum og 35.7% í ISB hópnum lágt IGF. Á degi 6 höfðu allir nema einn HÁ sjkl. (5.9%) eðl IGF-1 gildi en 25% í ISB hópnum enn lág IGF-1 gildi. \nÞegar tengsl hormónatruflana og alvarleika áfalls voru skoðuð var almennt með auknum alvarleika aukin truflun/bæling á kynhormóna- og skjaldkirtilshormónaöxlinum og aukin virkjun á sykursteraöxlinum. \n \nÁlyktanir: Hormónatruflanir í bráðafasa HÁ og ISB eru algengar. HÁ sjkl. eru í hættu á að fá sykursteraskort en að greina slíkan skort réttilega er erfitt en um leið mjög mikilvægt. Algengasta truflun á heiladingulsöxli var í kynhormónaöxli. Aukin bæling á kynhormóna- og sykursteraöxlinum á heiladingulstigi öxulsins sem og munur á bælingu vaxtarhormónaöxulsins milli HÁ og ISB sjkl. getur bent til að það sé munur á meingerð hormónatruflana hjá HÁ og ISB sjkl. Hvort hormónabreytingar í bráðafasa HÁ og ISB sé eðlileg aðlögun eða ekki er óljóst sem og klíniskt mikilvægi þessara truflana annarra en í sykursteraöxlinum. Frekari rannsókna er því þörf. Meðhöndlandi læknar ættu að meta sykursteraöxulinn þegar ábending er til staðar. Skimun fyrir öðrum hormónatruflunum gæti bent til þarfar á eftirfylgd í síðfasa HÁ og ISB.
Source: Skemman
Author: Pétur Sigurjónsson 1981
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Neurology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7047906649
