Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Hjartagallar eru algengustu meðfæddu gallarnir sem greinast í börnum. Erlendar rannsóknir sýna að hlutfall nýbura sem fæðast með hjartagalla sé um 1% en hér á landi hefur það verið um 1,1-1,7%. Hluti þessara barna þarf á gjörgæslumeðferð að halda, en þar sem ekki er starfrækt barnagjörgæsla hér á landi leggjast börn eldri en þriggja mánaða inn á almennar gjörgæsludeildir. Hjartveik börn á almennum gjörgæsludeildum eru hópur barna sem lítið hefur verið rannsakaður hér á landi. \nMarkmið: Að kortleggja fjölda innlagðra barna með meðfædda hjartagalla á gjörgæsludeildir Landspítala, legutíma, alvarleika veikinda, tegund veikinda og dánartíðni. \nAðferð: Notast var við afturskyggnt rannsóknarsnið þar sem skoðaðar voru innlagnir hjartveikra barna (0-18 ára) á gjörgæsludeildir Landspítala á árunum 2011-2018 og þeim lýst út frá alþjóðlegum viðmiðum um innlagnir barna á gjörgæsludeild. \nNiðurstöður: Alls lögðust inn 32 börn með meðfædda hjartagalla í 40 innlögnum á gjörgæsludeildir Landspítala á tímabilinu. Meðalaldur var 3,5 ár og börnin voru frá 10 daga upp í 17 ára gömul. Stærsti aldurshópurinn í innlögnum var 0-12 mánaða (16). Fjöldi innlagðra stúlkna var 22 (55%) og bráðainnlagnir voru 21 (52,5%). Meðallegutími var 4,2 sólarhringar þar sem stysti legutími var hálfur sólarhringur en lengsti 38,1 sólarhringur. Fjögur börn (12,5%) létust. PRISM III mælitækið var notað til að meta alvarleikastig veikinda þar sem hærra stig merkir alvarlegri veikindi. Meðaltal PRISM gilda barnanna var 7,8. Meðaltal PRISM gilda þeirra barna sem létust var 20,8 en þeirra sem lifðu af 6,3. Fjöldi barna sem lögðust inn á almenna gjörgæsludeild í kjölfar hjartaaðgerðar á tímabilinu var 21 (53,5%). Öndunarvélameðferð var veitt í 29 tilfellum og meðaltímalengd þeirra var 2,8 sólarhringar. \nÁlyktanir: Þegar börn með meðfædda hjartagalla leggjast inn á gjörgæslu þurfa þau flókna og sérhæfða hjúkrunarmeðferð. Þessar upplýsingar gefa okkur vísbendingu um stöðu hjartveikra barna á landsvísu og geta nýst til að efla þekkingu heilbrigðisstarfsfólks á veikindum og helstu hjúkrunarþörfum barna með meðfæddan hjartagalla. Að auki nýtist sú þekking til að bæta þjónustu við foreldra þessara barna. \n \nLykilorð: börn, meðfæddur hjartagalli, gjörgæsludeild, alvarleiki veikinda
Source: Skemman
Author: Gunnhildur Viðarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Cardiology and Cardiovascular Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: congenital heart disease, pediatric cardiac surgery, hospitalization, preoperative waiting time, length of hospital stay, mortality, Landspítala hospital, quality of care, patient safety, patient satisfaction, patient satisfaction with hospital care, patient satisfaction with hospital environment
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048017695
