Work

Heimurinn er fullur af litlum heimum. Mismunandi notkun tengslaneta íslenskra stjórnenda með annarsvegar erlenda reynslu og hins vegar eingöngu innlenda reynslu

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Tengslanet er mikilvægt tæki fyrir stjórnendur í atvinnulífinu sem getur, sé það rétt notað, skapað þeim forskot og ávinning í starfi. Það er mismunandi hvernig fólk nýtir og notar tengslanet sín og meðal annars hefur verið sýnt fram á að kynin nota þau á ólíkan hátt. Í þessari ritgerð verður varpað fram niðurstöðum úr rannsókn á því hvernig stjórnendur nota tengslanet, hugsanlega á ólíkan hátt, eftir reynslu og eins eftir mun á kynjum. Félagsleg tengslanetagreining (e. social network analysis) er tiltölulega ung fræðigrein og hefur lítið verið nýtt á Íslandi. Kraftur tengslaneta felst í því hvern maður þekkir og eru árangursríkar skipulagsheildir og samfélög í æ ríkara mæli að horfa til krafta öflugra tengslaneta og áhrifa þeirra. Gert er grein fyrir félagslegri tengslanetagreiningu (e. social network analysis), veikum og sterkum tengingum (e. weak ties and strong ties) ásamt holrýmum (e. structural holes) sem eru notuð til útskýringar á tengslanetum. Tengslanet snúast að mestu um að ná samkeppnisforskoti sem einstaklingur og fyrir sína skipulagsheild með því að hafa betra aðgengi að upplýsingum sem er forsenda þess að aðilar geti tekið ákvarðanir. Rannsóknin, sem þessi samantekt byggir á, er eigindleg og byggir á eigindlegum viðtölum. Leitast var svara við því hvernig íslenskir stjórnendur, með erlenda starfs- eða námsreynslu annars vegar, og einungis innlenda starfs- eða námsreynslu hins vegar, nýta tengslanet sín, byggja þau upp og hafa ávinning af þeim. Niðurstöður benda til að stjórnendur með erlenda reynslu nýti sér tengslanet á annan hátt heldur en stjórnendur með innlenda reynslu, það er, út frá hugmyndalegu sjónarmiði á meðan innlendu stjórnendurnir sjá hag sinn í notkun tengslaneta út frá aðgengi að upplýsingum. Þegar fjallað er um hugmyndalegt sjónarmið á það ekki endilega við að fá nýjar hugmyndir heldur til að fá viðurkenningu á ákveðnum sjónarmiðum. Aðgengi að upplýsingum snýr að því forskoti sem viðkomandi hefur þegar hann hefur gott aðgengi að upplýsingum. Konur virðast treysta sínum tengiliðum betur en karlmenn og þá sérstaklega konur með erlenda reynslu. Einnig bendir ýmislegt til þess að stjórnendur með erlenda reynslu séu duglegri en aðrir hópar við að byggja upp tengslanet sitt með markvissum hætti.
Source: Skemman
Author: Erla Hjördís Gunnarsdóttir 1976
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048051837
Cites: 22
Cited by: 1
Related to: 10