Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein í konum og leiðandi ástæða dauðsfalla af völdum krabbameina hjá þeim hópi. Krabbamein í eggjastokkum er ekki eins algengt en horfur þess eru þó mun verri. Arfgengar breytingar í BRCA1 eða BRCA2 genum geta aukið líkur á krabbameini í brjóstum og eggjastokkum umtalsvert og er BRCA1 c.4096+3A>G ein þeirra, en hún er ein af þeim landnemabreytingum sem hafa fundist á Íslandi. Við rannsóknir á arfgengum breytingum í krabbameini er mikilvægt að hafa góð rannsóknarmódel fyrir einstaka breytigar, en CRISPR/Cas9 er öflug tækni sem gerir nákvæmar genabreytingar á erfðaefni fruma mögulegar með nokkuð einföldum hætti. CRISPR/Cas9 base editors eru ensím sem hægt er að nota til þess að kalla fram breytingu á stöku basapari í þessum tilgangi. \nMarkmið verkefnisins var að setja upp aðferð til að skanna fyrir BRCA1 c.4096+3A>G breytingunni í CRISPR klónum með qPCR prófi. Einnig að búa til rannsóknarmódel til frekari rannsókna á breytingunni, en til þess var base editor CRISPR/Cas9 plasmíð innleitt í T47D brjóstakrabbameinsfrumulínu. \nNiðurstöður qPCR prófa sýndu að vel tókst að greina sýni með BRCA1 c.4096+3A>G stökkbreytinguna frá þeim sem ekki bera stökkbreytinguna, sem og að finna lágmarks frumufjölda sem þarf í DNA einangrun til þess að greina stökkbreytinguna með fullnægjandi hætti. Innleiðing CRISPR/Cas9 base editor plasmíða í T47D brjóstakrabbameinsfrumum var framkvæmd með rafgötun og lípíð myndandi efni og var valið fyrir jákvæðum frumum með GFP tjáningu. Frumur voru flokkaðar með frumuflæðisjá og niðurstöður eftir flokkun sýndu að vel tókst til að búa til frumur þar sem CRISPR/Cas9 base editor plasmíð var innleitt. \nCRISPR er öflug tækni til að búa til tilraunarmódel til rannsókna og erfðabreytingum. Í þessu verkefni voru búin til rannsókartól sem munu nýtast sem grunnur að framtíðar vinnu við rannsóknir á BRCA1 c.4096+3A>G breytingunni og áhrifum hennar á framþróun brjósta- og eggjastokkakrabbameins.
Source: Skemman
Author: Elva Rós Hrafnsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Molecular Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048088515
