Work

„Instagram er bara glansmynd og ekkert annað“ Hin ólíku áhrif Instagram á framsetningu á sjálfi karla og kvenna

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Í ritgerð þessari sem er lokaritgerð höfundar til B.A. prófs í félagsfræði er rannsókn \ngerð á framsetningu sjálfsins á samfélagsmiðlinum Instagram og hvort munur sé milli \nkynjanna í þessari framsetningu. Farið er í helstu kenningar á sjálfinu á félagsfræðilegum grundvelli, en kennismiðirnir Georg Herbert Mead, Charles Horton Cooley og Erving Goffman eru þekktastir fyrir kenningar sínar á þessu sviði. Kenningarnar fjalla allar um hvernig sjálfið mótast í samfélaginu í samskiptum við aðra, en Internetið og samfélagsmiðlar hafa skapað nýjan grundvöll fyrir mótun sjálfsins með breyttum samskiptamáta. Framkvæmd var eigindleg rannsókn með sex viðtölum. Helstu niðurstöður voru þær að áhrifastjórnun virðist vera viðurkennd á Instagram, sem lítur út fyrir að mestu ganga út á að sýna hápunkta úr lífi einstaklinga. Kynin virðast nota miðilinn í sama tilgangi en konur virðast vera uppteknari af viðbrögðum annarra á myndum þeirra í formi like og fylgjenda. Einnig virðast vera ákveðnar óskrifaðar reglur í Instagram samfélaginu um hvernig myndir kynin mega eða mega ekki birta.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048143558
Cites: 16
Cited by: 1
Related to: 10