Work

Í takt við tímann : starfslýsingar þroskaþjálfa í grunnskólum

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um starfslýsingar þroskaþjálfa í grunnskólum, einkum þeirra skóla er kenna sig við stefnuna um skóla án aðgreiningar. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hversu vel starfslýsingarnar samræmast lykilákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Varpað verður ljósi á hvernig starfsábyrgð fagstéttarinnar er skilgreind í starfslýsingum og hversu vel þær endurspegla hlutverk þeirra, starfsskyldur og fagleg sjónarmið. Ritgerðin er byggð á fræðilegri úttekt og eigindlegri rannsókn. Rannsóknin byggir á viðtölum við átta þroskaþjálfa sem annars vegar hafa reynslu af starfi í grunnskólum og hins vegar ráðgjafar- og stjórnunarstörfum. Markmið rannsóknarinnar er þríþætt, í fyrsta lagi að vekja athygli á og beina sjónum að mikilvægi þess að starfslýsingar og forsendur þeirra séu í samræmi við þau faglegu viðmið er leiða skulu störf þroskaþjálfa í dag. Í öðru lagi að varpa ljósi á stöðu, hlutverk og starfsábyrgð þroskaþjálfa í grunnskólum með áherslu á að skoða hvort og hvernig starfslýsingar ramma inn störf þeirra með samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi. Í þriðja lagi að draga fram sýn þroskaþjálfa á stöðu mála hvað starfslýsingar varðar og þær lausnir sem þeir leggja til út frá þeirra faglegu forsendum. Niðurstöður okkar sýna að þroskaþjálfarnir sem tóku þátt í rannsókninni voru sammála um mikilvægi starfslýsinga og að þeim finnst gott að hafa þær til hliðsjónar til að ramma inn þeirra störf. Ennfremur árétta þeir mikilvægi þess að starfslýsingarnar séu í góðu samræmi við skilgreint starfshlutverk þeirra og hugmyndafræði. Einnig benda niðurstöður á að endurskoða þurfi starfslýsingar þroskaþjálfa í grunnskólum í ljósi ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þeirra hugmynda er leiða stefnuna um skóla án aðgreiningar. Í því ljósi þurfa þær að endurspegla mikilvægt hlutverk fagstéttarinnar við að styðja fötluð börn til fullgildrar þátttöku í öllu skólasamfélaginu í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048211007
Cites: 7
Cited by:
Related to: 10