Work

Langtímaáhrif kannabisneyslu

Year: 2003
Type: article
Abstract: Fjöldi rannsókna hafa verið gerðar á fíkniefninu kannabis og hafa flestar beinst að fíkninni sjálfri og taugaeitrunareinkennum hjá þeim sem nota kannabis. Að undanförnu hafa birst niðurstöður rannsókna sem sýna annars vegar að kannabisreykingar valdi eiturverkun á erfðaefnið og framkalli þannig krabbamein og hins vegar að kannabisneysla tengist geðröskunum. Neysla kannabis jókst mjög á síðustu tugum seinustu aldar meðal ungs fólks í iðnþróuðum löndum. Það sem ýtti undir þessa auknu neyslu var ekki síst það hversu auðvelt var að verða sér úti um þennan vímugjafa en einnig auknar hömlur gegn áfengisneyslu og akstri bifreiða. Samfara þessu var það ef til vill hald manna að neysla kannabis væri hættulaus og gerði ekkert til eða að hún væri í það minnsta ekki eins skaðleg og reykingar og áfengisneysla. Fljótlega fór neysla kannabis að valda áhyggjum því talið var að hún gæti leitt til neyslu annarra og hættulegri vímuefna, einsog síðar var staðfest (1, 2).
Author: Vilhjálmur Rafnsson
Language: Czech
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048435323
FWCI:
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10