Work

Íslensk tunga erlendis : hvernig íslenskir foreldrar kenna börnum sínum íslensku í útlöndum

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Fáar rannsóknir eru til um hvernig Íslendingar erlendis kenna börnum sínum íslensku. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvaða efni og aðferðir foreldrar notuðu til þess að kenna börnum sínum á aldrinum 2–6 ára íslensku og hversu ánægðir þeir voru með það efni. Einnig var skoðað hvaða stuðning foreldrarnir teldu sig þurfa til þess að kenna tungumálið. Spurningalisti var lagður fyrir 180 íslenska foreldra víðsvegar í heiminum sem rannsakandi komst í samband við í gegnum margvíslega hópa fyrir Íslendinga í útlöndum á Facebook. Niðurstöður sýna að foreldrar nota helst samtöl við börnin, lesa bækur og hlusta á tónlist en minna aðrar aðferðir til þess að kenna íslensku þó að mikið magn af efni sé til og aðgengilegt á netinu. Flestir íslenskir foreldrar eru ánægðir með þær bækur og sjónvarpsefni sem þeir hafa aðgang að en finnst ekki auðvelt að finna efni á netinu. Meirihluti þátttakenda vill hafa betra aðgengi að íslensku efni fyrir barnið sitt og einnig að íslensk yfirvöld styðji við íslenskukennslu barna sem búa erlendis. Niðurstöðurnar gefa til kynna að íslenskir foreldrar erlendis nota fáar aðferðir til að kenna íslensku og annaðhvort gera sér ekki grein fyrir hvaða efni er hægt að nota til að kenna börnum sínum tungumálið eða vita ekki hvar eigi að leita að því. Í framhaldinu mætti skoða betur stöðu íslenskukunnáttu hjá íslenskum börnum úti. Einnig mætti búa til námsefni til að kenna íslenskum foreldrum erlendis að bæta íslenskukunnáttu og orðaforða barna sinna eða gera það efni sem til er aðgengilegra.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048508883
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10