Work

Mapping and Tracking Object Recognition Abilities in Children: Exploring the Contribution of Visual and Semantic Information

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Hlutaskynjun er margþætt ferli sem felur í sér úrvinnslu sjónrænna eiginleika hluta á meðan unnið er úr merkingarfræðilegum tengslum þeirra. Í þessari ritgerð er fjallað um þróun ferla sem liggja að baki sundurgreiningu hluta hjá börnum á aldrinum fjögurra, sex og átta ára, með áherslu á úrvinnslu mismunandi eiginleika sem hlutir bera með sér. Tauganet var notað til að safna upplýsingum um mismunandi sjónræna eiginleika sem hlutir hafa að geyma, bæði æðri sjónræna eiginleika (e. high-level visual information) og lægri sjónræna eiginleika (e. lower-level visual information) og merkingarbær tengsl (e. semantic similarity) hlutanna voru metin af fullorðnum. Hvernig þessir eiginleikar hlutanna eru nýttir í hlutaskynjun var metið með söfnunarverkefni (e. foraging). Niðurstöðurnar sýna þroska á þessum ferlum, þar sem eldri börn reiða sig í auknum mæli á æðri sjónræna eiginleika og merkingarbæra eiginleika hlutanna til að greina þá í sundur. Þar að auki virðist nýting á merkingarbærum eiginleikum hlutanna ná fullum þroska í kringum átta ára aldur, á meðan nýting á æðri sjónrænum eiginleikum heldur áfram að þroskast, jafnvel eftir að átta ára aldri er náð. Þessar niðurstöður veita innsýn í notkun sjónrænna og merkingarbærra upplýsinga í hlutaskynjun og varpa ljósi á mismunandi framlag þessara ferla í mismunandi aldurshópum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048518894
Cites: 170
Cited by:
Related to: 10