Work

Lífmerki í segulómmyndum af heila fyrir snemmbúna greiningu á taugahrörnunarsjúkdómum.

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt að einstaklingar með progressive supranuclear palsy (PSP) og multiple system atrophy (MSA) hafa oft einkennandi hrörnun í heilastofni. Óljóst er hvort slíkt eigi einnig við einstaklinga með dementia with Lewy bodies (DLB). Rannsóknarteymi okkar við Háskóla Íslands hefur þróað myndgreiningaraðferð fyrir segulómmyndir af heila, sem merkir þessi heilasvæði á sjálfvirkan og nákvæman hátt. Aðferðirnar eru byggðar á gervigreind og er markmið þeirra að geta magngreint hrörnun í heilastofni og þannig stutt snemmbúna greiningu á DLB, PSP og MSA. \n \nEfniviður og aðferðir: Heildarfjöldi sjúklinga í þýði var 16 (8 DLB, 4 PSP og 4 MSA). Klínískar upplýsingar voru sóttar í sjúkraskrá Landspítala. Myndgreiningaraðferðin var keyrð á segulómmyndum sjúklinganna sem gaf tölulegar upplýsingar um rúmmál undirsvæða heilastofnsins. Tölfræðigreining var gerð á breytileika stærðar heilastofns milli sjúkdóma og samanburðarhóps, sem innihélt 21 heilbrigðan einstakling úr gagnagrunni Alzheimer‘s Disease Neuroimaging Initiative. \n \nNiðurstöður: Niðurstöður benda til að brú sé marktækt minni í MSA miðað við samanburðarhóp (14%, p=0,007) og miðað við DLB (12%, p=0,026), og marktækt minni í PSP miðað við samanburðarhóp (18%, p=0,026). Miðheili var marktækt minni í MSA (19%, p=0,014) og PSP (25%, p=0,001) miðað við samanburðarhóp og marktækt minni í PSP miðað við DLB (21%, p=0,014). Efri hnykilstoðir voru marktækt minni í PSP miðað við samanburðarhóp (62%, p=0,003) og miðað við DLB (56%, p=0,025). „Miðheila-brú“ hlutfallið í PSP var marktækt frábrugðið samanburðarhópnum (p=0,016). Stærðin „efri hnykilstoðir × miðheili“ var marktækt frábrugðin í MSA (p=0,010) og í PSP (p=0,001) miðað við samanburðarhóp og í MSA miðað við DLB (p=0,029). Stærðin „mænukylfa × miðheili“ var frábrugðin í PSP miðað við samanburðarhóp (p=0,014), og í PSP miðað við DLB (p=0,027). Tvö tilfelli þar sem greiningin var PSP, áttu segulómmynd af heila sem var tekin fyrir greiningu og gaf til kynna möguleika á snemmbúinni greiningu með myndgreiningaraðferðinni. Annað tilfellið átti fleiri en eina segulómrannsókn sem sýndi aukna rýrnun á undirsvæðum heilastofns á milli rannsókna. \n \nÁlyktanir: Þessar niðurstöður benda til þess að sjálfvirk myndgreining á hrörnun heilastofns styðji við greiningarnar PSP og MSA. Erfitt er að draga þá ályktun að hægt sé að greina þessa sjúkdóma fyrr en hægt er í dag vegna lítils sjúklingaþýðis í rannsókninni.
Source: Skemman
Author: Hugrún Lilja Ragnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048523866
Cites: 55
Cited by:
Related to: 10