Work

Málleg samskipti í leikskóla : samræður starfsmanna leikskóla við börn sem hafa íslensku sem annað mál

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn voru skoðuð málleg samskipti starfsmanna við leikskólabörn með íslensku sem annað tungumál (ísl2börn). Rannsóknin byggir á fræðilegum bakgrunni erlendra og innlendra rannsókna á málþroska barna. Þar er sýnt fram á mikilvægi málörvunar og þá sér í lagi samræðna við börn til að styðja við málþroska þeirra (Romeo o.fl., 2018). Afar þýðingarmikið er að skoða málörvun sem ísl2 börn fá í leikskóla í ljósi þess að niðurstöður rannsókna gefa ástæðu til að ætla að þessi barnahópur taki almennt litlum framförum í íslensku á leikskólaárum sínum. Ísl2 börn eru að jafnaði með mun minni íslenskan orðaforða en börn sem eiga íslensku að móðurmáli (ísl1) og þessi munur hefur tilhneigingu til að aukast með ári hverju yfir alla grunnskólagöngu barnanna (Aneta Figlarska o.fl., 2017; Sigríður Ólafsdóttir o.fl., 2016). Þá hefur komið í ljós að íslenskur orðaforði er drifkraftur lesskilnings hjá þessum barnahópi. Fyrir börn sem nota ekki íslensku með fjölskyldu sinni er þýðingarmikið að nýta árin í leikskólanum vel. Þar gefast hugsanlega einu tækifæri barnanna til að öðlast og efla stöðugt færni sína í íslensku. Meginmarkmið rannsóknarinnar voru að skoða samræður kennara og annarra starfsmanna við ísl2 leikskólabörn og bera saman við samræður þeirra við börn með íslensku sem móðurmál (ísl1). Þátttakendur rannsóknarinnar voru átta starfsmenn og fjögur ísl2 leikskólabörn ásamt 21 ísl1 barni. Myndbandsupptökur voru notaðar og samtölin skráð orðrétt. Kannaður var fjöldi orða á mínútu, fjöldi mismunandi orða og meðaltíðni orða (Jóhanna Thelma Einarsdóttir o.fl., 2019) sem notuð voru í samræðunum. Að sama skapi voru skoðuð sérstaklega tilgangur og eðli samræðnanna, hvort þær voru a) bein orðræða, b) að gefa upplýsingar, hrósa eða útskýra, c) orðainnlögn og endurtekningar orða, d) lokaðar spurningar eða e) opnar spurningar sem fóru fram í gagnkvæmum tjáskiptum á milli kennara og barna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að ísl2 börnin fengu færri orð á mínútu og orðin voru að meðaltali algengari en orðin sem notuð voru í samræðum við ísl1 börnin. Þá fengu ísl2 börnin í meira mæli beina orðræðu á meðan ísl1 börnin fengu meira af orðainnlögnum og opnum spurningum. Þessar niðurstöður eru áhyggjuefni í ljósi þess að rannsóknir sýna mikilvægi þess að starfsfólk leikskóla sæki í samræður við börn, leggi inn ný orð, beini til þeirra opnum spurningum sem hvetja þau til að tjá sig. Á þann hátt er þeim gert kleift að taka stöðugum framförum í málfærni sinni.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048660250
Cites: 37
Cited by: 1
Related to: 10