Work

Líkamlegt atgervi leikmanna í tveimur körfuknattleiksliðum á Íslandi

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í þessari rannsókn var líkamlegt atgervi körfuknattleiksmanna í liðum í fyrstu deild og efstu deild á Íslandi kannað. Einnig var kannaður munur á líkamlegu atgervi milli bakvarða og framherja. Þeir þættir sem voru kannaðir á líkamlegu atgervi voru fjórir: hraði var mældur með 30 metra hraðaprófi, uppstökk var mælt með uppstökksprófi með armsveiflu, framstökkskraftur var mældur með þrístökksprófi á öðrum fæti og loftháð úthald var mælt með Yo-Yo IR1 þolprófi. Rannsóknarspurningar voru tvær: „hversu mikill munur er á líkamlegu atgervi á milli liða í úrvalsdeild og fyrstu deild í körfuknattleik karla á Íslandi?“ og „hver er munur á samanburði á líkamlegu atgervi á milli bakvarða og framherja í úrvalsdeild og fyrstu deild í körfuknattleik karla á Íslandi“. Leikmenn (n=16) úr liðum Stjörnunnar og Breiðabliks voru fengnir til mælinga í þeim tilgangi að gera samanburð á milli liðanna. Leikmenn voru mældir í 30 metra hlaupaprófi fyrir hraða, uppstökksprófi fyrir hæð sem stokkin er, þrístökki á öðrum fæti fyrir lengd og Yo-Yo IR1 þolprófi. Leikmenn Stjörnunnar sýndu að meðaltali betri árangur í mælingunum en marktækur munur (p ≤ 0,05) var á niðurstöðum mælinga hjá liðunum í þrístökki á hægri og vinstri fæti og í þolprófi. Ekki fannst marktækur munur á milli liðanna í öðrum mælingum. Bakverðir sýndu að meðaltali betri árangur en framherjar í öllum mælingum en marktækur munur var á milli bakvarða og framherja í 30 metra hlaupaprófi. Ekki var um marktækan mun að ræða í öðrum mælingum. Vegna mismunandi ákefðarstigs við mælingar á liðunum er ekki hægt að fullyrða að jafn mikill munur sé á líkamlegu atgervi hjá liðunum og rannsóknin ber með sér.
Source: Skemman
Author: Sigurður Orri Hafþórsson 1990
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048675197
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10