Work

Má ég trufla? : eru tengsl á milli frammistöðu í athyglisverkefnum og hugrænna bresta í hversdagslegu lífi

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Athygli í hversdagslegu lífi er nauðsynleg til að vinna úr öllu því áreiti sem birtist okkur í umhverfinu. Sjónræn athygli hjálpar okkur að velja úr þeim upplýsingum sem okkur þykir skipta mestu máli. Í mismunandi aðstæðum er mikilvægt að beita athyglinni á skilvirkan hátt. Hugrænir brestir er hugtak sem notað hefur verið til að vísa í minniháttar mistök sem eiga sér stað í daglegu lífi. Til þess að rannsaka hugræna bresti hafa verið lögð fyrir ýmis athyglispróf og sjálfsmatslistar til að meta mistök einstaklinga. Sjálfsmatslistinn CFQ hefur verið ein mest notaða mælitæki hugrænna bresta. Listinn inniheldur 25 spurningar sem voru byggðar á smávægilegum mistökum sem flestir hafa upplifað. \nÍ þessari rannsókn voru þrjú athyglisverkefni lögð fyrir þátttakendur ásamt CFQ sjálfsmatslistanum, til að mæla athygli í daglegu lífi. Makar þátttakendanna voru einnig beðnir um að svara matslista sem átti segja til um sýnilega bresti annarra. \nVerkefnin voru Go/No go, Attention Network Task (ANT) og sjónleit. Megin rannsóknarspurningin var að sjá hvort að fylgni væri á milli frammistöðu þátttakenda í athyglisverkefnunum og heildarskors sjálfsmatslistans CFQ, og var lögð megin áhersla á undirþáttinn athyglisrof. \nÞátttakendur voru 93 talsins og tóku tilraunina á eigin tölvur. Þáttagreining var framkvæmd á spurningalistanum CFQ og notast var við þriggja þátta líkan. Heilt yfir sýndu niðurstöður ekki marktæka fylgni á milli athyglisverkefnanna og CFQ. Niðurstöður bentu hins vegar til þess að aldur þátttakenda virðist hafa áhrif á frammistöðu í athyglisverkefnunum og heildarskor CFQ listans, þar sem eldri aldurshópurinn greindi frá færri hugrænum brestum en þeir yngri. \n \n \n \n \nLykilhugtök: Athygli, hugrænir brestir, CFQ, Go/No go, Attention network task, sjónleit.
Source: Skemman
Authors: Díana Lind Arnarsdóttir 1990-, Rakel Matthíasdóttir 1991-
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048777201
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10