Work

Með vindinn í fangið: Notagildi LUK fjölþáttagreiningar við stefnumótun og ákvarðanatöku um nýtingu á vindorku

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Mikið hefur verið rætt um orkuskipti hér á landi og meintan orkuskort þeim tengdum. Hingað til hafa einkum vatnsafl og jarðvarmi verið notuð til raforkuframleiðslu á Íslandi. Á síðari árum hefur vindorka einnig verið nefnd til sögunnar sem mögulegur orkugjafi og eru nú uppi miklar hugmyndir um nýtingu hennar hér á landi. Nýting vindorku fellur, rétt eins og nýting vatnafls og jarðvarma, undir verndar- og orkunýtingaráætlun, rammaáætlun, þó að deilur hafi verið uppi um hvort að svo eigi að vera. Því hefur verið kallað eftir að mótuð verði sérstök stefna um nýtingu vindorku. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna notagildi LUK fjölþáttagreiningar við mótun stefnu og ákvarðanatöku um nýtingu vindorku, sem og notagildi hennar við samanburð umhverfisáhrifa af vindorkukostum. Gert var einfalt kort þar sem nokkrir ólíkir umhverfisþættir voru teknir til skoðunar með hliðsjón af viðfangsefni faghóps 1 við mótun rammaáætlunar og borið saman við núverandi vindorkukosti. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hægt er að bera saman umhverfisáhrif tveggja eða fleiri vindorkukosta. Niðurstaðan var einnig áþekk niðurstöðu faghóps 1 á þeim vindorkukostum sem faghópurinn tók til umfjöllunar. Rannsóknin sýndi að LUK fjölþáttagreining býður upp á ýmsa möguleika við stefnumótun um nýtingu vindorku hér á landi. Þó vantar frekari rannsóknir og gögn, auk þess sem þróa þyrfti aðferðafræðina betur, til þess að hægt sé að nýta hana á marktækan hátt.
Source: Skemman
Author: Hlynur Aðalsteinsson
Language: Icelandic
Subfield: Law
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7048933369
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10