Work

Nemendur með dyslexíu og ADHD : snemmtæk íhlutun - leið til frekari námstækifæra.

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Í þessari heimildaritgerð er fjallað um námsvanda barna með dyslexíu og ADHD og um gildi snemmtækrar íhlutunar og markviss viðbrögð við vanda þeirra í kennslu. Skoðuð eru þau frávik sem þessi börn eiga við að etja svo og sameiginlegu einkenni sem oft skarast hjá þessum hópi barna, en þau einkenni geta stafað af sömu taugafræðilegu vandamálum í heila. Auðvelt er að ruglast á þeim einkennum sem fylgja báðum röskunum (dyslexíu og ADHD) vegna þess hversu líkt birtingarform þeirra er. Ef þau úrræði sem eru fyrir hendi, eru nýtt frá byrjun grunnskólagöngu og jafnvel enn fyrr með þátttöku foreldra og fagfólks, getur það hjálpað börnum sem glíma við námserfiðleika og þroskafrávik eða raskanir sem til dæmis stjórna einbeitingu og hegðun (ADHD). Farið er í gegnumlestrarferlið, og einnig þau úrræði sem geta hjálpað börnum í átt til frekari námstækifæra. \n \nMargt bendir til þess að með snemmtækri íhlutun og viðeigandi greiningum geti börn fengið nauðsynlega aðstoð til að yfirstíga þær hindranir sem þessar raskanir valda. Samvinna milli heimilis, skóla og fagfólks sem hefur sérhæft sig í úrræðum fyrir þessa einstaklinga, skiptir einnig miklu máli.
Source: Skemman
Author: Inga Dóra Ingvadóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7049233742
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10