Work

Mæling á svörtu kolefni / hreinu kolefni úr útblæstri bíla: Þróun aðferðar

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Svart kolefni/hreint kolefni eru hluti af kolefniskennda hluta efnis sem myndast við ófullkominn bruna jarðefnaeldsneytis og hafa aukist töluvert í náttúrunni síðustu áratugina eða eftir iðnbyltingu. Þetta eru efni sem geta bæði valdið náttúrunni sem og mönnum miklum skaða. Talið er að svart kolefni geti verið krabbameinsvaldandi sem og að þessi efni geti haft gífurleg áhrif á loftslag og vistkerfi. \nÍ þessu verkefni var leitast eftir því að þróa aðgengilega aðferð til þess að mæla svart/hreint kolefni sem hagnýta mætti til þess að mæla magn þessara efna í díselútblæstri. Verkefnið var tvíþætt. Annars vegar prófun á brennslu ólífræns og lífræns kolefnis þar sem notaður var brennsluofn af gerðinni CD-1200G (Vacuum tube high temperature furnace). Þar voru notuð kol og sellulósi til þess að reyna að greina hvernig brennsluaðferð þyrfti að nota til þess að brenna allt lífræna kolefnið en halda öllu ólífræna efninu í sýninu til þess að þróa áfram aðferð til mælinga á svörtu/hreinu kolefni. Hins vegar var prófuð NIR greining á sýnum úr díselútblæstri sem safnað var á ryksíur og athugað hvort litróf fengjust sem gæfu vísbendingar um innihald svarts/hreins kolefnis.
Source: Skemman
Author: Björk Lárusdóttir 1995
Language: Icelandic
Subfield: Fuel Technology
Field: Energy
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7049235573
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10