Work

Notkun tækni við miðlun sjúklingafræðslu: Áhrif á áhættuþætti og lífsgæði kransæðasjúklinga

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Kransæðasjúkdómur er lífsstílstengdur sjúkdómur og heilsusamlegur lífsstíll getur hægt á framgangi sjúkdómsins. Fræðsla getur stutt við lífsstílsbreytingar með því að auka hæfni kransæðasjúklinga til að sinna sjálfsumönnun tengdri sjúkdómnum og þannig dregið úr áhættuþáttum sjúkdómsins og bætt lífsgæði þeirra. Til að ná þeim árangri þarf bæði framsetning og innihald sjúklingafræðslu að mæta þörfum sjúklinga. Með fjarheilbrigðisþjónustu er möguleiki að auka fjölbreytni í miðlun og bæta aðgengi kransæðasjúklinga að sjúklingafræðslu. \nTilgangur: Að taka saman þekkingu um árangur og áhrif mismunandi miðlunar fræðsluefnis, með eða án tækni, á áhættuþætti og lífsgæði kransæðasjúklinga og jafnframt lýsa innihaldi þeirra fræðsluíhlutana. Markmiðið er að afla þekkingar sem nýta má við þróun fræðslu fyrir sjúklingahópinn. \nAðferð: Notuð var kerfisbundin fræðileg samantekt á megindlegum rannsóknum samkvæmt leiðbeiningum frá Joanna Briggs Institute. Leitað var að rannsóknargreinum á ensku sem höfðu birst á tímabilinu janúar 2012 til desember 2017 í gagnasöfnum PubMed, Cinahl, Proquest og Scopus. Gæði rannsókna voru metin af tveimur rannsakendum með MAStARI-stigun. Lýsing á fræðsluíhlutunum var metin með TIDieR-matstæki. PRISMA-yfirlýsingin var höfð til hliðsjónar við framsetningu niðurstaðna. \nNiðurstöður: Við lesefnisleit fundust 20 slembiraðaðar rannsóknir og ein íhlutunarrannsókn án slembiröðunar sem uppfylltu inntökuskilyrði. Flestar rannsóknirnar voru frá Evrópu og almennt voru gæði rannsókna góð. Niðurstöður TIDieR-matsins leiddu í ljós að fræðsluinnihaldi og fræðsluaðferðum var illa lýst í rannsóknunum. Fræðsluinnihaldið tengdist aðallega kransæðasjúkdómi, meðferð og heilbrigðum lífsstíl. Fræðsluíhlutanir með tækni sem voru einstaklingshæfðar og gagnvirkar höfðu jákvæð áhrif á upplifun kransæðasjúklinga um stuðning. Fræðsla með símaeftirfylgd, smáskilaboðum, vefsíðu, snjallsímaforriti og fræðsla án tækni hafði marktæk áhrif á áhættuþætti og lífsgæði kransæðasjúklinga. \nÁlyktun: Fræðsla með eða án tækni getur eflt hæfni kransæðasjúklinga til að sinna sjálfsumönnun tengdri sjúkdómi og stuðlað að því að þeir taki upp heilbrigðan lífsstíl og öðlist betri lífsgæði. Fræðsla með tækni getur náð til stærri sjúklingahóps og leitt til sparnaðar í heilbrigðiskerfinu samanborið við hefðbundna fræðslu án tækni. \nLykilorð: Kransæðasjúkdómur, sjúklingafræðsla, sjálfsumönnun, annars stigs forvarnir, hjartaendurhæfing, tækni, áhættuþættir, lífsstílsbreytingar, lífsgæði
Source: Skemman
Author: Hulda Halldórsdóttir 1978
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7049343208
Cites: 73
Cited by:
Related to: 10